.jpg)
22 jún. 2026Innilega til hamingju Martin Hermannson! Ótrúleg endurkoma hjá ykkur í meisturunum í Alba Berlin gegn frábæru liði Bayern Munchen. Fyrst má tala um endurkomu í einvíginu þegar Bayern Munchen, Þýskalandsmeistarar síðasta tímabils, voru komnir í kjörstöðu 2-1 en þrjá leiki þurfti til að klára einvígið og þar með verða Þýskalandsmeistarar. Martin og félagar komu til baka í einvíginu, unnu leik 4 til að jafna í 2-2 og bjuggu svo til enn skemmtilegri dramatík í oddaviðureigninni sem fór fram í Munchen. Alba menn skoruðu einungis 7 stig í 2.leikhluta og voru því 20 stigum undir í hálfleik. Þeir komu hins vegar til baka og unnu magnaðan 81-84 endurkomusigur með góðum 3.leikhluta og svo frábærum 4.leikhluta. Martin skoraði 7 stig og gaf 8 stoðsendingar í oddaleiknum. Algjörlega frábær endir á tímabilinu!
Við hlökkum til að fá þýska meistarann Martin heim á parketið fyrir æfingarnar gegn Ítalíu og Bretlandi.
Mynd: Alba Berlin.


