30 jún. 2026

U18 ára landslið kvenna náði bronsverðlaunum á NM en stelpurnar léku líkt og drengirnir í Täljehallen í Södertälje í Svíþjóð. 

Stelpurnar okkar unnu þrjá góða sigra gegn Eistum, Dönum og Norðmönnum og náðu þar með 3.sæti Norðurlandamótsins að þessu sinni. Flottur árangur og við óskum liðinu og aðstandendum innilega til hamingju.

Arnheiður okkar var svo valin í úrvalslið Norðurlandamótsins að þessu sinni og óskum við henni til hamingju með þann heiður og þá útnefningu.

Úrslit mótsins:

ÍSLAND 74 - 72 Eistland
ÍSLAND 78 - 77 Danmörk
ÍSLAND 94 - 67 Noregur
ÍSLAND 64 - 105 Finnland
ÍSLAND 89 - 118 Svíþjóð

U18 ára landslið kvenna skipa:

Arna Rún Eyþórsdóttir
Arnheiður Ólafsdóttir
Berta María Þorkelsdóttir
Brynja Benediktsdóttir
Harpa Karítas Kjartansdóttir
Helga Jara Bjarnadóttir
Inga Lea Ingadóttir
Katla Guðjónsdóttir
Kristín Björk Guðjónsdóttir
Sigrún Sól Brjánsdóttir
Telma Hrönn Loftsdóttir
Þórey Tea Þorleifsdóttir

Þjálfari liðsins er Margrét Ósk Einarsdóttir og henni til aðstoðar eru Anna Fríða Ingvarsdóttir og Sævar Elí Kjartansson.