6 okt. 2026

Nýverið leitaði KKÍ til almennings og hreyfingarinnar í heild sinni varðandi tvö ný íslensk nöfn á tvær nýjar villur en óíþróttamannslegu villunni hefur verið skipt upp í tvennt, annars vegar disruptive foul og svo hins vegar flagrant foul.

Eftir margar frábærar tillögur frá ykkur sem hafið áhuga á okkar ástkæru íþrótt, hefur dómarasamfélagið á Íslandi tekið utan um tvö sem þeim þótti mest lýsandi fyrir villurnar og nýju nöfnin eru því flæðisvilla og háskavilla.

Kristinn Óskarsson tók vel í að fara yfir þessi nýju villuheiti og útskýra aðeins áherslurnar sem fylgir hvorri villu fyrir sig.

Myndband með Kristni á FB má finna hér og myndbandið á Instagram má finna hér.

Hannes Birgir Hjálmarsson kom fram með flæðisvilluna. Vala Steinsdóttir var á svipuðum nótum og nefndi flæðivillu. 

Björgvin Ingi Ólafsson, Henning Haraldsson, Jón Emil Halldórsson og Óskar Páll Elfarsson komu allir (í sitthvoru lagi) með uppástunguna að háskavillunni og Indriði Grétarsson nefndi einnig háska og háskaleik.

Þakkir til ykkar sem og allra annarra sem komu með frábærar tillögur að þessum tveimur nýju villunöfnum. Við erum öll í sama liðinu!