
20 okt. 2026Sprite einn af bakhjörlum KKÍ
Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) og Sprite hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning sem gildir til ársins 2029. Með samstarfinu verður Sprite áberandi hluti af íslenskri körfuboltamenningu og sýnilegt á helstu viðburðum sambandsins.
Sprite á sér langa sögu í körfubolta á alþjóðavísu og hefur í gegnum tíðina tengst íþróttinni, götukörfubolta og ungmennamenningu. Með nýju samstarfi við KKÍ er markmiðið að styrkja þessi tengsl enn frekar á Íslandi og skapa skemmtilega upplifun fyrir iðkendur og körfuboltaáhugafólk.
Samstarfið felur meðal annars í sér sýnileika Sprite á A-landsleikjum karla og kvenna, VÍS-bikarviku KKÍ og á miðlum sambandsins. Þá sjá báðir aðilar tækifæri til að þróa samstarfið enn frekar á næstu árum.
„Við erum ótrúlega spennt að vinna með SPRITE enda er sá drykkur með sterkar körfuboltatengingar í sögulegu samhengi. Við leitumst alltaf eftir því að vinna með aðilum sem gefa mikið af sér sem á sannarlega við í þessu tilviki, “segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ.
„Körfubolti og Sprite eiga vel saman. Körfubolti snýst ekki bara um það sem gerist inni á vellinum, heldur líka um menninguna, orkuna og samfélagið í kringum íþróttina. Sprite hefur lengi verið hluti af þeirri menningu á alþjóðavísu og okkur finnst spennandi að styrkja þau tengsl hér á Íslandi. Við viljum vera meira en merki á auglýsingaskilti og hlökkum til að vinna með KKÍ að því að skapa skemmtilega upplifun fyrir körfuboltaáhugafólk um allt land,“ segir Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi.
Báðir aðilar líta á samninginn sem upphaf að spennandi samstarfi og vonast til að næstu þrjú árin verði fyrsti kaflinn í langvarandi samstarfi Sprite og íslensks körfubolta.


