28 okt. 2026AJ Vörulistinn gerði okkur kleift að lyfta upp skrifstofuhúsnæði sambandsins með þeim hætti sem nú hefur verið gert og tekið er eftir.

Þessi aðstoð er algjörlega ómetanleg og kunnum við AJ Vörulistanum sannarlega bestu þakkir fyrir vörurnar og ekki síður uppsetningu.

Skrifstofan hefur fengið mikla andlitslyftingu að öllu leyti undanfarin misseri með nýju gólfefni, nýjum og stærri rýmum, nýjum vinnubúnaði, hljóðdempandi þiljum og skilrúmum og fleiru sem felst í góðri yfirhalningu. 

Ein stærsta breytan felst í nýjum húsgögnum eins og skrifborðum, fundarborði, sófaborðum, stólum, fundarstólum, skrifstofustólum, skápum, hillum, bekkjum og hirslum, sem koma öll glæný á skrifstofuna frá okkar frábæru samstarfsaðilum í AJ Vörulistanum. 

Myndir af nýju húsgögnunum má sjá hér á FB síðu sambandsins.

Samstarfsaðilar og bakhjarlar sambandsins eru okkur afar mikilvægir í allri okkar vinnu sem sannast ekki síst í vegferð sem þessari.

Takk fyrir okkur AJ!