Í gær lauk hinu árlega KEA-skyrmóti Breiðabliks sem haldið var í Smáranum. Mótið er einkum ætlað leikmönnum á aldrinum 6-10 ára, þótt í þetta sinn hafi 11 lára leikmenn verið með. Sex íþróttafélög (Breiðablik, KR, Fjölnir, Haukar, Stjarnan og Kormákur) sendu 30 lið á mótið. Keppendur voru um 250 léku þeir 59 leiki. Aðstaðan í Smáranum til að halda Minniboltamót er frábær. Þar er vítt til veggja og hægt er að leika á þremur stórum völlum samtímis þar sem aðstað er góða fyrir varamenn, þjálfara og áhorfendur. Framkvæmd mótsins tókst ágætlega hjá Blikum. Margt athyglisvert mátti sjá á mótinu, svo sem: Ótrúlega öflugt starf hjá Haukunum í 6-8 ára aldursflokki drengja, nokkra stráka og stelpur á aldrinum 8-9 ára sem eru búin að tileinka sér mikla tækni og þó nokkurn leikskilning, mikinn áhuga margra foreldra á börnum sínum og hversu góðir margir leikmenn eru orðnir sem eru búnir að fara í gegnum nokkurra ára minnibolta-"prógramm" hjá þeim félögum sem taka minniboltann nokkuð árlega. Vonandi nýta þessi minniboltabörn og þjálfarar þeirra febrúarmánuð vel til æfinga og mæta síðan á Samkaupsmótið í Reykjanesbæ í byrjun marsmánaðar. Minniboltaforeldri