Það eru aðeins fimm umferðir eftir af Iceland Express deild karla og framundan er því lokaspretturinn þar sem barist verður um deildarmeistaratitilinn, um sæti og heimavallarrétt í úrslitakeppninni auk þess sem fallbaráttan verður algleymingi. Heimasíða KKÍ fer yfir frammistöðu liðanna í Iceland Express deildinni til þessa í hinum ýmsu tölfræðiþáttum og tekur fyrir eitt og eitt lið fram að 18. umferðinni sem hefst klukkan 19.15 á fimmtudagskvöldið. KR er í 3. sæti í Iceland Express deildinni með 12 sigra og 5 töp. KR er ekki í efsta sæti í neinum tölfræðiþætti en er hinsvegar í 2. sæti í alls sex tölfræðiþáttum. KR hefur fengið næstfæst stig á sig, hefur fiskað næstflestar villur á mótherja sína og liðið er einnig í 2. sæti yfir flest stig og fráköst frá varamönnum. Þá er KR einnig í 2. sæti yfir bæði fæstar stoðsendingar og fæst sóknafráköst hjá mótherjum. KR er ekki í neðsta sæti á neinum lista en sætaröð KR á öllum listum má finna hér fyrir neðan. Röð liða í Iceland Express deildinni: 1. Njarðvík 15 sigrar - 2 töp 2. Keflavík 13-4 3. KR 12-5 4. Grindavík 12-5 5. Skallagrímur 11-6 6. Snæfell 10-7 7. ÍR 9-8 8. Fjölnir 7-10 9. Hamar/Selfoss 4-13 10. Þór Akureyri 4-13 11. Haukar 3-14 12. Höttur 2-15 Leikir sem KR á eftir: 23. febrúar ÚtileikurHamar/Selfoss (9. sæti) 26. febrúar Heimaleikur ÍR (7. sæti) 2. mars Útileikur Snæfell (6. sæti) 5. mars Heimaleikur Höttur (12. sæti) 9. mars Útileikur Grindavík (4. sæti) Tölfræði KR í Iceland Express deild karla 2005-2006: Sóknarleikurinn: KR 8. sæti Flest stig í leik 84,5 KR 9. sæti Fæstir tapaðir í leik 17,9 KR 10. sæti Flestar stoðsendingar í leik 15,2 KR 9. sæti Fæst varin skot mótherja 4,0 KR 8. sæti Flest sóknarfráköst í leik 10,2 KR 2. sæti Flestar fiskaðar villur í leik 22,2 KR 9. sæti Flestar 3ja stiga körfur í leik 7,6 KR 3. sæti Flest víti fengin í leik 22,6 KR 8. sæti Besta skotnýting 45,2% KR 5. sæti Besta 3ja stiga skotnýting 37,2% KR 11. sæti Besta vítanýting 66,5% KR 6. sæti Hæsta hlutfall frákasta í sókn 31,4% Varnarleikurinn: KR 2. sæti Fæst stig á sig í leik 77,4 KR 10. sæti Fæstar villur fengnar í leik 21,6 KR 6. sæti Flestir þvingaðir tapaðir í leik 17,6 KR 2. sæti Fæstar stoðsendingar hjá móth 14,3 KR 2. sæti Fæst sóknarfráköst mótherja 9,1 KR 9. sæti Flest varin skot í leik 2,4 KR 4. sæti Flestir stolnir boltar í leik 11,9 KR 6. sæti Fæst víti gefin í leik 20,7 KR 5. sæti Slakasta skotnýting móth. 43,0% KR 3. sæti Hæsta hlutfall frákasta 52,0% KR 3. sæti Hæsta hlutfall frákasta í vörn 72,3% KR 5. sæti Slakasta 3ja stiga skotnýting móth. 34,4% Bekkurinn: KR 2. sæti Flest stig frá bekk í leik 25,3 KR 3. sæti Flestar mínútur frá bekk í leik 64,4 KR 2. sæti Flest fráköst frá bekk í leik 9,3 KR 4. sæti Flestar stoðs frá bekk í leik 4,3 KR 3. sæti Besta skotnýting hjá bekk 43,7% KR 8. sæti Besta vítanýting hjá bekk 67,3%