
15 feb. 2018
Craig Pedersen, þjálfari íslenska landsliðsins í körfuknattleik, og aðstoðarþjálfarar hans, Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson, hafa boðað leikmenn til æfinga fyrir landsleikina sem framundan eru í undankeppni HM karla 2019.
Formlegar landsliðsæfingar hefjast eftir helgina en áður en að þeim kemur hafa verið boðaðir til æfinga á laugardag og sunnudag 20 leikmenn sem eiga kost á að verða boðaðir til áframhaldandi æfinga í loka æfingahópnum. Í hópnum sem mætir fyrr til æfinga eru bæði leikmenn sem hafa verið í eða í kringum landsliðsæfingahópinn að undanförnu, ungir og efnilegir leikmenn og leikmenn sem hafa verið að stíga sín fyrstu spor með A-landsliðinu undanfarið.
Hópurinn æfir saman eins og áður segir um helgina og verða þá í kjölfarið nokkrir leikmenn boðaðir til áframhaldandi æfinga í lokaæfingahóp fyrir landsleikina tvo sem framundan eru, dagana 23. febrúar og 25. febrúar gegn Finnlandi og Tékklandi, hér heima í Laugardalshöllinni.
Um er að ræða gríðarlega mikilvæga leiki fyrir Ísland þar sem nauðsynlegt er að ná góðum úrslitum upp á framhald undankeppninnar, en liðið lék gegn Tékkum og Búlgaríu í nóvemberglugganum, þar sem báðir leikir töpuðust.
Það verður því krefjandi verkefni sem bíður þeirra 12 leikmanna sem valdir verða í landsliðið að þessu sinni í næstu viku.
Miðasala er hafin á leikina á www.tix.is en KKÍ hvetur körfuknattleiksaðdáendur landsins til að fjölmenna og styðja við bakið á liðinu, en það hefur sýnt sig að góður stuðningur hefur skipt sköpum á undanförnum árum í okkar heimaleikjum.
Þeir leikmenn sem boðaðir hafa verið í stóra æfingahópinn um helgina eru:| Axel Kárason | Tindastóll |
| Breki Gylfason | Haukar |
| Dagur Kár Jónsson | Grindavík |
| Emil Barja | Haukar |
| Emil Karel Einarsson | Þór Þorlákshöfn |
| Halldór Garðar Hermannsson | Þór Þorlákshöfn |
| Hjálmar Stefánsson | Haukar |
| Illugi Steingrímsson | Valur |
| Ingvi Rafn Ingvarsson | Þór Akureyri |
| Kári Jónsson | Haukar |
| Kristinn Pálsson | Njarðvík |
| Kristján Leifur Sverrisson | Haukar |
| Maciek Baginski | Njarðvík |
| Matthías Orri Sigurðarson | ÍR |
| Ólafur Ólafsson | Grindavík |
| Pétur Rúnar Birgisson | Tindastóll |
| Ragnar Ágúst Nathanaelsson | Njarðvík |
| Sigtryggur Arnar Björnsson | Tindastóll |
| Tómas Þórður Hilmarsson | Stjarnan |
| Viðar Ágústsson | Tindastóll |
Þeir leikmenn sem boðaðir hafa verið til æfinga eftir helgina í lokaæfingahópinn eru:
| Haukur Helgi Pálsson Briem | Cholet Basket, Frakkaland |
| Hlynur Bæringsson | Stjarnan |
| Hörður Axel Vilhjálmsson | Keflavík |
| Jakob Örn Sigurðarsson | Borås Basket, Svíþjóð |
| Jón Arnór Stefánsson | KR |
| Kristófer Acox | KR |
| Logi Gunnarsson | Njarðvík |
| Martin Hermannsson | Châlons-Reims, Frakkland |
| Pavel Ermolinskij | KR |
| Tryggvi Snær Hlinason | Valencia, Spánn |
Tveir leikmenn gáfu ekki kost á sér að þessu sinni en það voru þeir Brynjar Þór Björnsson, KR, og Ægir Þór Steinarsson, Tau Castello, Spáni.
#korfubolti


