29 nóv. 2026

Strákarnir okkar spila gífurlega mikilvægan leik gegn Tyrkjum í Istanbúl í kvöld. Leikurinn er spilaður kl. 19:00 á tyrkneskum tíma sem er þá kl. 16:00 heima á Íslandi og er leikurinn sýndur beint á RÚV.

Sigurinn gegn Bosníu gerði mikið fyrir liðið og framhald keppninnar orðið enn opnara og áhugaverðara.

Þeir tólf sem léku leikinn gegn Bosníu munu sömuleiðis leika gegn Tyrkjum í kvöld.

Við hvetjum landsmenn til að hópast fyrir framan sjónvarpið að horfa og styðja liðið með þeim hætti.

Leikmenn Íslands gegn Tyrklandi:

#3 Ægir Þór (c)
#5 Hilmar Smári
#6 Jón Axel
#9 Þórir Guðmundur
#10 Elvar Már
#12 Kári
#13 Haukur Helgi
#14 Kristinn 
#15 Martin
#18 Sigurður
#32 Tryggvi Snær
#34 Styrmir

Áfram Ísland!