
11 nóv. 2021
Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að fresta 2. umferð Íslandsmóts MB10 ára drengja og stúlkna sem leika átti í Garðabæ og Keflavík um komandi helgi. Þetta er gert vegna mikillar fjölgunar smita í þjóðfélaginu, og þá sérstaklega hjá börnum á grunnskólaaldri.
Þessi umferð verður leikin helgina 8.-9. janúar í staðinn, í Garðabæ og Keflavík. Hægt verður að óska eftir því að breyta skráningu í mótin fram til föstudagsins 10. desember 2021.


