
3 mar. 2022
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 53/2021-2022
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Viktor Páll Jóhannsson, leikmaður Stjörnunnar, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Hauka í drengjaflokki, sem fram fór þann 22. febrúar 2022.
Agamál 54/2021-2022
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Páll Magnús Unnsteinsson , leikmaður Hrunamanna, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hrunamanna gegn Fjölni, sem fram fór þann 25. Febrúar 2022.


