15 maí 2022

Valur varð meistari 2. deildar unglingaflokks karla á föstudagskvöld með sigri á Þór Ak. í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslit leiksins í lokin, 82-89. Þjálfari strákanna er Finnur Freyr Stefánsson.

Ástþór Atli Svalason var valinn maður leiksins, en hann skilaði 16 stigum, 11 stoðsendingum og 9 fráköstum.

Til hamingju Valur!