12 des. 2024

Dregið var í 8-liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna rétt í þessu.

Leikið verður dagana 18.-20. janúar 2025. Eftir það verða 4-liða úrslitin klár en þau fara fram 18. og 19. mars í Smáranum og úrslitaleikir karla og kvenna verða síðan laugardaginn 22. mars. Einnig fara fram bikarúrslit yngri flokka á VÍS Bikar-hátíðinni sem haldin verður þá vikuna með pompi og prakt. Dregið verður í 4-liða úrslitin mánudaginn 3.mars.

Eftirfarandi lið mætast í 8-liða úrslitum,

VÍS bikar karla

8-liða úrslit karla · Leikið 19.-20. janúar 2025

Sindri – Valur

KR – Njarðvík

Álftanes – Stjarnan

Keflavík – Haukar

 

VÍS bikar kvenna

8-liða úrslit kvenna · Leikið 18.-19. janúar 2025

Ármann – Hamar/Þór

Njarðvík – Tindastóll

Grindavík – Stjarnan

Þór Ak. - Haukar