16 apr. 2025

Undanúrslit 1. deildar karla hefjast í kvöld miðvikudaginn 16.apríl með fyrstu leikjum í viðureignum Ármanns og Breiðabliks sem og Hamars og Fjölnis.

Vinna þarf þrjá leiki til að fara í lokaúrslitin um laust sæti í Bónus deild karla að ári.

Leikjaplanið er einnig aðgengilegt hérna sem og lifandi tölfræði á forsíðu kki.is frá öllum leikjum. Allir leikir hefjast kl.19:15 fyrir utan heimaleiki Breiðabliks sem fara fram kl.16:00 og 17:00.

(2) Ármann - (7) Breiðablik

Leikur 1           16. apríl           Ármann – Breiðablik (Laugardalshöll)

Leikur 2           19. apríl           Breiðablik – Ármann (Smárinn)

Leikur 3           22. apríl           Ármann – Breiðablik (Laugardalshöll)

Leikur 4           26. apríl           Breiðablik – Ármann (Smárinn)            * ef með þarf

Leikur 5           30. apríl           Ármann – Breiðablik (Laugardalshöll)* ef með þarf

 

(3) Hamar - (5) Fjölnir

Leikur 1           16. apríl           Hamar – Fjölnir (Hveragerði)

Leikur 2           19. apríl           Fjölnir – Hamar (Dalhús)

Leikur 3           23. apríl           Hamar – Fjölnir (Hveragerði)

Leikur 4           26. apríl           Fjölnir – Hamar (Dalhús)        *ef með þarf

Leikur 5           30. apríl           Hamar – Fjölnir (Hveragerði)*ef með þarf