27 maí 2025

Stjarnan varð Íslandsmeistari í 9. flokki stúlkna 15. maí síðastliðinn með sigri á Keflavík. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Umhyggjuhöllinni og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í Blue-höllinni. Leikurinn fór 46-59 Stjörnunni í vil. Þjálfari liðsins er Yngvi Gunnlaugsson.

Berglind Katla Hlynsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 24,3 stigum, 7,7 fráköstum og 2,7 stoðsendingum.

Til hamingju Stjarnan!