
28 maí 2025
Stjarnan varð Íslandsmeistari í 10. flokki stúlkna 26. maí síðastliðinn með sigri á Fjölni. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Umhyggjuhöllini en Fjölnir jöfnuðu í leik tvö sem fór fram í Dalhúsum þannig að blása þurfti til úrslitaleiks. Úrslitaleikurinn fór síðan fram í Umhyggjuhöllinni og fór leikurinn 87-66 Stjörnunni í vil. Þjálfari liðsins er Yngvi Gunnlaugsson.
Berglind Katla Hlynsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 27,7 stigum, 8 fráköstum og 7,7 stoðsendingum.
Til hamingju Stjarnan!