
19 jan. 2026
Dregið var í 4-liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna rétt í þessu.
Leikið verður dagana 3. og 4. febrúar 2026 en svo fer úrslitaleikurinn fram 7. febrúar. Einnig fara fram bikarúrslit yngri flokka á VÍS Bikar-hátíðinni en þeir fara fram fimmtudaginn 5. febrúar, föstudaginn 6. febrúar og sunnudaginn 8. febrúar. Allir bikarleikir fara fram í Smáranum.
Eftirfarandi lið mætast í 4-liða úrslitum.
VÍS BIKAR KARLA
Undanúrslit 3. febrúar
17:15 Keflavík - Stjarnan
20:00 Tindastóll - KR
Úrslit 7. febrúar
15:00
VÍS BIKAR KVENNA
Undanúrslit 4. Febrúar
17:15 Keflavík - Hamar/Þór
20:00 Tindastóll - Grindavík
Úrslit 7. febrúar
18:15


