25 feb. 2026Rúnar Birgir Gíslason er eftirlitsmaður á leik franska liðsins Basket Landes og Galatasaray frá Tyrklandi í Euroleague kvenna í kvöld.

Leikurinn er leikur 2 í keppni liðanna um að komast í undanúrslit en Tyrkirnir unnu fyrsta leikinn í framlengingu eftir að hafa leitt með 19 stigum í venjulegum leiktíma.
Sigra þarf 2 leiki til að komast í undanúrslitin.

Dómarar leiksins í kvöld eru Jelena Tomic frá Króatíu, Ivana Ivanovic frá Serbíu og Hrvoje Cavar frá Bosníu Hersegovínu.