25 mar. 2026

Aþena hafði tryggt sér sigur í 1. deild kvenna fyrir lokaumferðina sem fór fram í gær og þar með sæti í Bónus deild kvenna á næstu leiktíð. Liðið fékk deildarmeistaratitilinn afhentan í gær eftir lokaleik sinn í deildinni á tímabilinu.

Við óskum Aþenu til hamingju með deildarmeistaratitilinn og sæti í Bónus deildinni að ári.

Þá er ljóst hvaða fjögur lið það verða sem berjast um sæti í Bónus deild kvenna á næsta keppnistímabili. En vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslit.

Liðin sem mætast í undanúrslitum eru:

Hamar/Þór – Selfoss

Þór Ak. – Fjölnir

Áætlaður fyrsti leikdagur í undanúrslitum er sunnudagurinn 29. mars og má sjá alla leikjadagskrá undanúrslita hér.