
4 apr. 2026
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 48/2025-2026
Með vísan til ákvæðis c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, sbr. f-lið sömu greinar, skal leikmaður Grindavíkur, nr. 45, Jordan Semple, sæta sekt að fjárhæð 80.000 kr. vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og Njarðvíkur sem fram fór þann 1. apríl 2026.
Agamál 49/2025-2026
Með vísan til c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal leikmaður Njarðvíkur, nr. 67, Dominykas Milka, sæta sekt að fjárhæð 40.000 kr. vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og Njarðvíkur sem fram fór þann 1. apríl 2026.
Agamál 50/2025-2026
Í ljósi verulega ámælisverðrar háttsemi áhorfenda í leik Grindavíkur og Njarðvíkur, sem fram fór 1. apríl 2026, þegar áhorfendur fóru inn á leikvöll og tóku þátt í stimpingum við leikmenn, skal Grindavík sæta sekt að fjárhæð 250.000 kr., sbr. h-liður 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál. Við ákvörðun refsingar er litið til þess að háttsemin var til þess fallin að skapa hættu og röskun á framkvæmd leiksins. Hins vegar telst það til málsbóta að gæslumenn brugðust hratt við aðstæðum og náðu að leysa úr þeim með skjótum hætti.
Agamál 51/2025-2026
Þar sem umrædd háttsemi í atvikaskýrslu dómara verður ekki heimfærð undir viðurlagaákvæði reglugerðar um aga- og úrskurðarmál ber nefndin að vísa málinu frá, sbr. 3. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarnefnd.
Agamál 52/2025-2026
Þar sem umrædd háttsemi í atvikaskýrslu dómara verður ekki heimfærð undir viðurlagaákvæði reglugerðar um aga- og úrskurðarmál ber að vísa málinu frá, sbr. 3. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarnefnd.
Agamál 162/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur, sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 163/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal DeAndre Kane leikmaður Grindavíkur, sæta 50 þúsund króna sekt vegna 8 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 164/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Dominykas Milka leikmaður, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla (refsistiga) sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 165/2025-2026
Með vísan til ákvæðis p. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Grindavík, sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 refsistiga sem liðið hlaut í leik Grindavíkur og Njarðvíkur.


