27 apr. 2026

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) og upplýsingatæknifyrirtækið Origo hafa undirritað samstarfssamning um stafræna lausna körfuboltans á Íslandi. Markmið samstarfsins er að einfalda samskipti, bæta þjónustu og gera upplýsingar aðgengilegri fyrir alla sem koma að íþróttinni.

Áhersla samstarfsins er á að byggja upp öflugt stafrænt umhverfi sem styður betur við daglegt starf körfuboltahreyfingarinnar. Lausnirnar verða þróaðar í nánu samstarfi við hreyfinguna þannig að þær taki mið af þörfum notenda og skapi virði fyrir sambandið og aðildafélög.

Samstarfið felur meðal annars í sér þróun nýrrar vefsíðu KKÍ sem mun bæta aðgengi að upplýsingum og styrkja miðlun efnis til mismunandi notendahópa. Jafnframt verður unnið að því að einfalda lykilferla innan hreyfingarinnar, svo sem með mínum síðum og rafrænum félagaskipti sem gera ferlið skilvirkara og gagnsærra fyrir félög og leikmenn.

Unnið verður markvisst að því að bæta yfirsýn og flæði upplýsinga innan hreyfingarinnar þannig að samskipti verði einfaldari og rekstur hagkvæmari.  Þannig leggja KKÍ og Origo grunn að lausnum sem nýtast til lengri tíma og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar.

 

„Körfuboltinn á Íslandi byggir á öflugu starfi félaga, sjálfboðaliða og samfélagsins alls. Með þessu samstarfi tökum við stórt skref í átt að einfaldari og skilvirkari rekstri þar sem tæknin styður betur við alla sem koma að íþróttinni. Markmiðið er að gera upplýsingar aðgengilegri, bæta yfirsýn og skapa betri upplifun fyrir iðkendur, félög og áhorfendur,“ segir Kristinn Albertsson, formaður KKÍ

 

Samstarfið er hugsað sem langtímaverkefni þar sem lögð verður áhersla á trausta stafræna innviði, öryggi gagna og stöðuga þróun í takt við þarfir hreyfingarinnar. Origo starfar samkvæmt ISO 27001 staðlinum sem tryggir hámarksvernd gagna og kerfa.

 

„Origo er stolt af samstarfinu við KKÍ. Okkur er kært að geta lagt okkar af mörkum til að styrkja grunnstarf körfuboltahreyfingarinnar. Við trúum á gildi æskulýðsstarfs og það hlutverk sem íþróttir og ungmennahreyfingin gegna í lýðheilsu á Íslandi. Vonin er að þetta samstarf stuðli að auknu aðgengi og auðveldari ferlum fyrir alla sem koma að þessari frábæru íþrótt,  hvort sem um ræðir sjálfboðaliða, iðkendur, fjölmiðla eða keppnisfólk." Árni Geir Valgeirsson, Forstjóri Origo

 

Origo er þjónustu og þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni og veitir fjölbreyttar lausnir á sviði hugbúnaðarþróunar og sfarnænnar umbreytingar. Körfuknattleiksamband íslands ber ábyrgð á skipulagi móta, landsliða og þróun íþróttarinnar. 

 

Mynd í viðhengi frá  hægri;

Alexandra Cruz Buenano, teymisstjóri Origo,  Kristinn Albertsson formaður KKÍ, Árni Geir Valgeirsson forstjóri Origo og Hannes S.Jónsson framkvæmdastjóri KKÍ.