4 jún. 2026

Íslendingar ættu að vera alveg sérlega stoltir af árangri íslenska karlalandsliðsins á umliðnum árum að mati Kamils Novak framkvæmdastjóra Körfuknattleikssambands Evrópu, FIBA Europe. 


„Ég þekki ekki hvernig Íslendingar líta sjálfir á þessi afrek en þetta er afar tilkomumikið. Og það eru engar ýkjur þegar við erum að tala um þjóð með um 400 þúsund íbúa sem er bara eins og meðal borg í Evrópu. Ísland hefur ekki bara komist einu sinni á Eurobasket [lokakeppni EM] heldur þrívegis í síðustu fjögur skipti. Við skulum ekki gleyma því hversu mikil samkeppnin er því raunhæft er að segja að tíu lið geti unnið EM og auðvelt er að benda á að sama þjóðin vinnur ekki EM tvö skipti í röð. Að komast þangað þrjú skipti af fjórum er magnað og nokkuð sem íslensku stuðningsmennirnir og íslensku félögin ættu að vera sérlega stolt af,“ segir Novak sem hefur ekki einungis fylgst með íslenska karlalandsliðinu á EM heldur sat einnig límdur við skjáinn þegar Ísland barðist við Georgíu um laust sæti á síðasta HM. 


„Ég horfði á allan leikinn, meðal annars vegna þess hversu mikla þýðingu hann hafði. Meðan á leiknum stóð fékk ég ýmis skilaboð sem tengdust leiknum og til að mynda frá öðrum heimsálfum. Skilaboðin voru stundum á þann veg að menn sögðust vita að Ísland væri með körfuboltalandslið en hefði aldrei grunað að Ísland gæti komist í lokakeppni HM. Ég staðfesti það og benti mönnum á að fyrri leikur þessara þjóða hafi verið mjög jafn og allt gæti gerst. En ég varð sem sagt var við hversu mikla athygli það vakti að Ísland væri í lokaumferð undankeppninnar að berjast um sæti á HM. Það hafðist ekki hjá Íslendingum og Svartfjallaland er því fámennasta þjóðin sem hefur komist á HM. En Svartfjallaland er helmingi fjölmennara en Ísland. Við vorum því einni körfu frá því að enn fámennari þjóð kæmist á HM þegar síðasta skotið fór ekki ofan í hjá Íslandi gegn Georgíu. Ég tel því að framgangur Íslendinga sé mjög sérstakur.


Mikil ábyrgð fylgir gestgjafahlutverkinu


Íslendingar voru í gestgjafahlutverkinu á dögunum þegar þing FIBA Europe fór fram á Grand hótel í Reykjavík. Novak segir það ekki hafa verið mjög erfiða ákvörðun fyrir FIBA Europe þótt Ísland sé smáríki í samfélagi þjóðanna. 


„Þegar einn varaforseta FIBA Europe [Hannes Sigurbjörn Jónsson] sækist eftir því að fá þing til heimalandsins þá vegur það þungt. Þing FIBA Europe er stærsti vettvangurinn til að ræða málefni íþróttarinnar í Evrópu og þar af leiðandi fylgir því mikil ábyrgð að halda þingið enda eru mörg mál á dagskrá. Körfuknattleikssamband Íslands hefur staðið sig afar vel hvað það varðar. Einnig er vert að geta þess að þegar miklir óvissutímar eru í alþjóðastjórnmálum, eins og nú, er að mörgu að hyggja fyrir hreyfinguna í Evrópu,“ segir Novak sem hóf störf fyrir FIBA Europe árið 2012 og raunar var það Ólafur heitinn Rafnsson sem réði Novak til starfa en Ólafur var þá forseti FIBA Europe. 


„Ég fór að leiði Ólafs í þessari Íslandsferð en hann réði mig á sínum tíma. Við gengum í gegnum afar erfiða tíma hjá FIBA Europe í forsetatíð hans og okkar samstarf var náið. Ég þekki hans fjölskyldu alla hvort sem það er Gerður eða börnin sem eru vitaskuld ekki börn lengur. Ólafur er mér ofarlega í huga nú þegar ég er staddur á Íslandi vegna þess að okkur gekk mjög vel að vinna saman. Þegar ég kom til starfa var klofningur í körfuboltafjölskyldunni í Evrópu og staðan var óneitanlega erfið því einnig var ágreiningur við Alþjóða körfuboltasambandið. Pólitíska andrúmsloftið var því mjög erfitt og krefjandi.“

Stórstjörnur í NBA frá Evrópu


Hvað segir Novak um stöðu körfuboltans í Evrópu um þessar mundir? Hafa vinsældir íþróttarinnar aukist? 


„Íþróttin heldur sannarlega áfram að vaxa í Evrópu og þróunin er í rétta átt. Við fáum oft sterkar vísbendingar um slíkt þegar Ólympíuleikarnir fara fram. Evrópsku liðin eru mjög sterk og þegar horft er til NBA þá eru þar stórstjörnur frá Evrópu. Í NBA hafa lengi verið leikmenn frá Evrópu og ég man til dæmis eftir Detlef Schrempf á sínum tíma en núna eru leikmennirnir frá Evrópu stórstjörnur. Á allra síðustu árum hafa Evrópubúar verið valdir leikmaður ársins í NBA hvað eftir annað [í fimm tilfellum af síðustu átta]. Ef til vill er það ástæða þess að NBA-deildin hefur ásamt FIBA Europe tekið ákvörðun að koma á fót nýrri sterkri deild sem gæti gert það að verkum að öflugir leikmenn dvelji lengur í Evrópu áður en þeir fara í Ameríku,“ sagði Kamil Novak þegar kki.is spjallaði við hann á Grand hótel í Reykjavík.