26 jún. 2026

Nú styttist óðum í að nýtt keppnistímabil hefjist í öllum okkar aldursflokkum og deildum. Allt frá Bónus deildum og öðrum deildum meistaraflokkanna til yngri flokka og fjölliðamóta. Skráning liða, uppsetning og undirbúningur er því í fullum gangi.  

Metþátttaka og skráning er í 1.deild kvenna. 12 lið eru skráð til leiks og þar af eru 9 aðallið. Breiðablik og Skallagrímur koma aftur inn í deildina eftir nokkurra ára hlé ásamt Þór Þorlákshöfn sem sendu síðast sameiginlegt lið til leiks með Hamri í Bónus deildinni en félögin hafa nú slitið því samstarfi. Auk þeirra 9 aðalliða sem eru skráð í 1.deild kvenna eru þrjú B eða U lið skráð til leiks.

Eins og kemur fram hér að ofan slitu Hamar og Þór Þorlákshöfn samstarfi sínu í meistaraflokki kvenna á suðurlandinu en Ármann tekur í kjölfarið sæti þeirra í Bónus deildinni í haust og þar með halda Ármenningar sæti sínu í Bónus deild kvenna frá síðasta keppnistímabili.

Í 1.deild karla tekur Hamar sæti Fylkis þar sem Fylkir ákvað að skrá sig í 2.deild karla eftir eitt ár í 1.deildinni. Hamar heldur þar með sæti sínu í 1.deild karla þrátt fyrir að hafa lent í neðsta sæti deildarinnar á síðasta keppnistímabili.

2.deild karla heldur áfram sínum dampi með 18 liðum skráðum sem er sami fjöldi og á síðustu leiktíð. En það sem er kannski skemmtilegast þar er að nokkur ný félög eru skráð til leiks í deildinni að þessu sinni, sum að koma alveg ný inn og önnur að koma inn eftir langt hlé. Við hlökkum til að fá inn Augnablik, Íþróttafélag Breiðholts, Mána, Reyni Sandgerði, Smára Varmahlíð og Víði í Garði. Mörg þessara félaga eru venslalið annarra félaga á efri stigum deildarkeppninnar. Deildin spilast með öllum aðalliðunum sem nú þegar eru í deildinni ásamt fyrrnefndum félögum, U liðum og einnig heldur KR b sæti sínu í deildinni.

Við erum spennt fyrir komandi tímabili og hlökkum til að fylgjast með gangi mála hjá nýjum félögum sem ætla að taka deildarslaginn með okkur.