17 júl. 2026

Friðrik Árnason var tilnefndur af KKDÍ til að fara sem dómari með U18 ára landsliði kvenna á Norðurlandamótið í Södertalje í Svíþjóð dagana 25.-30.júní. Dómarar sem fara fyrir okkar hönd eru bæði að dæma og fræðast. Þessi leið er mikilvægur liður til að efla dómara í störfum sínum og gefa þeim jafnframt tækifæri til að dæma á erlendri grundu.

Við heyrðum í Friðriki til að fræðast um það sem fór fram í hans hluta mótsins: Við byrjuðum alla daga á morgunfundi með instructors (leiðbeinendum) þar sem farið var yfir helstu áherslur frá FIBA og þær væntingar sem leiðbeinendur okkar gerðu til dómarahópsins. Það var gert bæði með glærukynningu, með virku samtali við hópinn og einnig með myndbandsklippum."


Jafnframt segir Friðrik: Það helsta sem var verið að leggja áherslu á var að greina hvert „play“ frá upphafi til enda áður en tekin er ákvörðun, tímasetningu á flauti dómarans og að greina hver ber ábyrgð á hvaða varnarmanni og að sá dómari flauti í flautunum gerist sá aðili brotlegur."

Friðrik vildi ekki fara mikið dýpra í fræðin á þessum tímapunkti en hvetur fólk til að kynna sér hlutina á dómaranámskeiðum sambandsins í náinni framtíð.

Friðrik dæmdi eftirfarandi leiki:

Leikdagur eitt: Noregur – Finnland, dæmdi með Amanda frá Svíþjóð og Emile frá Danmörku.

Leikdagur tvö: Eistland – Noregur, dæmdi með Bilal frá Svíþjóð og Emile frá Danmörku.

Leikdagur þrjú: Svíþjóð – Eistland, dæmdi með Semyon frá Noregi og Emile frá Danmörku.

Leikdagur fjögur: Danmörk – Eistland, dæmdi með Bilal frá Svíþjóð og Inna frá Noregi.

Leikdagur fimm: Noregur – Danmörk, dæmdi með Bilal og Amanda frá Svíþjóð.

Um dómgæsluna segir Friðrik: Á öllum leikjum voru einnig leiðbeinendur sem fylgdust með leikjunum og eftir leiki var sest niður og leikurinn rýndur. Farið var yfir hvað gekk vel hjá dómaranum sjálfum, hvað hefði betur mátt fara og svo rýnt í hvernig okkur gekk sem hópur eða „crew“. Einnig var farið yfir myndbands klippur úr atvikum leiksins og sköpuðust oft líflegar umræður í kringum þær."

Að lokum varðandi reynsluna af ferðalaginu bætir Friðrik við: Lærdómurinn og þekkingin sem maður öðlast á svona móti er gríðarlegur og voru leiðbeinendur afskaplega ánægðir með framfarir hópsins á þeim áherslum sem þeir settu fram í upphafi móts. Ég kem klárlega reynslunni ríkari heim og ekki skemmir fyrir vináttan sem maður öðlast svona á alþjóðavettvangi."

Virkilega gaman að fá svona innsýn í reynsluheim dómaranna okkar og vonandi getum við deilt fleiri reynslusögum á næstu misserum. Takk kærlega Friðrik fyrir að deila þessu með okkur og körfuboltafjölskyldunni. 

Á myndinni sem fylgir má sjá Friðrik í miðjunni með tveimur samdómurum sínum.