4 ágú. 2026

U18 ára landslið karla endaði í 15.sæti B-deildar EuroBasket sem haldin var í Rijeka og Opatija í Króatíu 24. júlí - 2. ágúst 2026. 

Strákarnir okkar spiluðu í B-riðli keppninnar og mættu þar Tékklandi, Póllandi, Aserbaídsjan, Portúgal og Úkraínu. Liðið vann þrjá leiki í riðlinum og endaði í 3. sæti B-riðils sem tryggði umspilsleiki um sæti 9-16 í framhaldinu. Liðið var óheppið að komast ekki enn lengra, þ.e. í 8-liða úrslit og vonbrigðin leyndu sér ekki við að ná ekki alla leið þangað. Tveir nokkuð jafnir tapleikir fylgdu í kjölfar riðlakeppninnar en að lokum kom góður sigur gegn Aserbaídsjan þegar strákarnir okkar tryggðu sér 15. sætið í lokaleiknum.

Liðsheild U18 ára landsliðsins var mikil og andinn í liðinu var góður allan tímann þrátt fyrir nokkra ósigra á leiðinni en það fylgir svona stórmótum að fá allan tilfinningaskalann í fangið.

15. sætið varð niðurstaðan að þessu sinni og vel gert að enda mótið á jákvæðum nótum. 

Úrslit leikja Íslands í B-deild EuroBasket í Rijeka og Opatija í Króatíu árið 2026:

Riðlakeppnin B-riðill:

ÍSLAND 87 - 68 Portúgal
ÍSLAND 57 - 88 Tékkland
ÍSLAND 95 - 56 Aserbaídsjan
ÍSLAND 80 - 67 Úkraína
ÍSLAND 71 - 95 Pólland

Umspil um sæti 9-16:

ÍSLAND 75 - 83 Sviss

Umspil um sæti 13-16:

ÍSLAND 74 - 86 Norður - Makedónía

Leikur um 15. sætið:

ÍSLAND 91 - 73 Aserbaídsjan

U18 ára landslið karla sem lék í B-deild EuroBasket þetta árið í Króatíu var þannig skipað:

Benóní Stefan Andrason - KR
Bóas Unnarsson - Njarðvík
Daníel Geir Snorrason - Stjarnan
Freyr Jökull Jónsson - Breiðablik
Jakob Kári Leifsson - Stjarnan
Jón Árni Gylfason - Skallagrímur
Leó Steinssen - Svíþjóð
Páll Gústaf Einarsson - Bandaríkin
Patrik Joe Birmingham - Bandaríkin
Róbert Óskarsson - Bandaríkin
Steinar Rafn Rafnarsson - Stjarnan
Sturla Böðvarsson - Snæfell

Þjálfari liðsins er Ísak Máni Wíum og honum til aðstoðar eru Mikael Máni Hrafnsson og Ismael Herrero Gonzalez. 

Takk fyrir flott mót strákar og til hamingju með ykkur!

Áfram ÍSLAND!