
7 ágú. 2026
U15 ára landslið drengja náði bronsverðlaunum á Nordic Open eftir að hafa unnið Danmörku í lokaleik sínum á mótinu.
Drengirnir léku þrjá leiki á mótinu sem fór fram í Kisakallio Lohja í Finnlandi dagana 3.-6. ágúst.
Fyrst spiluðu þeir gegn Lettlandi, næst gegn Finnlandi og svo loks gegn Danmörku þar sem góður sigur leit dagsins ljós.
Úrslit mótsins:
ÍSLAND 63 - 87 Lettland
ÍSLAND 71 - 76 Finnland
ÍSLAND 65 - 52 Darnmörk
U15 ára landslið drengja skipa eftirfarandi:
Albert Þorleifsson - Breiðablik
Axel Kári Arnarsson - Breiðablik
Benedikt Arnór Þórólfsson - Breiðablik
Einar Jökull Eyþórsson - Selfoss
Guðjón Máni Brjánsson - Álftanes
Guðmundur Nóel Jónsson - KR
Hjörtur Páll Davíðsson - Keflavík
Hrafn Viðarsson - Stjarnan
Jakob Hrafn Þórisson - Þór Þ.
Óttar Ingimar Davíðsson - Fjölnir
Pétur Steinn Gunnarsson - ÍA
Sölvi Hrafn Arnarsson - Breiðablik
Þjálfari liðsins er Ilija Omrcen og honum til aðstoðar eru Gunnar Sverrisson og Hlynur Logi Ingólfsson.
Við óskum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum liðsins til hamingju með flotta fyrstu landsliðsferð.
Áfram ÍSLAND!


