1 sep. 2026

Leikir A-landsliðs karla gegn Serbíu og Tyrklandi voru fyrirfram mjög erfiðar viðureignir enda leikir gegn hæst skrifuðu körfuboltaþjóðum heims. Serbar eru í 3.sæti á heimslista FIBA og Tyrkland í 11.sæti. Við Íslendingar erum hins vegar ekki vanir því að horfa á svona lista og höfum alltaf trú á því sem við gerum. 

En slíkt dugði ekki til að þessu sinni. Fyrstu þrír leikhlutarnir gegn Serbíu voru engu að síður virkilega vel útfærðir af hálfu strákanna okkar og þjálfarateymisins. Íslenska liðið komst hins vegar aldrei í takt við heimaleikinn gegn Tyrkjum.


Það góða í þessu er að það er nóg eftir af þessari undankeppni. 4 leikir eftir og næsti gluggi í lok nóvember er gegn Bosníu heima fimmtudaginn 26. nóvember og svo útileikur gegn Tyrkjum sunnudaginn 29. nóvember. 

Serbía 102 - 73 ÍSLAND

19 stig - Elvar Már Friðriksson
18 stig - Martin Hermannsson
14 stig - Tryggvi Snær Hlinason
8 stig - Jón Axel Guðmundsson
6 stig - Styrmir Snær Þrastarson
5 stig - Kristinn Pálsson
2 stig - Hilmar Smári Henningsson
1 stig - Kári Jónsson

ÍSLAND 73 - 110 Tyrkland

11 stig - Kristinn Pálsson, Martin Hermannsson
10 stig - Styrmir Snær Þrastarson
9 stig - Jón Axel Guðmundsson
7 stig - Elvar Már Friðriksson, Tryggvi Snær Hlinason
6 stig - Kári Jónsson
5 stig - Hilmar Smári Henningsson
3 stig - Sigtryggur Arnar Björnsson
2 stig - Sigurður Pétursson, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson

Áfram ÍSLAND!