3 sep. 2026Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, hefur gefið út nýjar leikreglur sem taka gildi nú í haust. 

Ein af þessum breytingum er að óíþróttamannsleg villa heitir ekki lengur því nafni heldur hefur henni verið skipt upp í annars vegar ,,Disruptive foul" og ,,Flagrant foul".

Disruptive foul á við um brot sem eru harkalegri en venjuleg villa en þó er það frekar villa sem framkvæmdar eru af leikmönnum til að stoppa leikinn utan anda körfuboltans án þess þó að vera harkalegt. Ef villan er hins vegar talin harkaleg þá ætti að dæma Flagrant foul - nema auðvitað ef brotið verðskuldar brottrekstrarvillu.

KKÍ veit að margt áhugafólk um körfubolta hefur áhuga á íslensku máli og því leitum við til ykkar út í hreyfinguna til að finna góðar þýðingar á þessar nýju villur.

Þau ykkar sem hafið góðar íslenskar tillögur fyrir Disruptive foul og Flagrant foul, eruð eindregið hvött til að senda póst á  kki@kki.is.


Við hlökkum til að sjá skemmtilegar tillögur berast í hús. 

Áfram körfubolti.