
10 sep. 2026
Gulur september felur í sér samvinnu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir á öllum stigum. Í dag er guli dagurinn þar sem samfélagið reynir að hafa allt í gulu.
Af hverju gulur september?
Til að vekja athygli á geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum.
Af hverju gulur?
Gulur er litur sjálfsvígsforvarna.
Af hverju september?
Haustið er valið því 10. september er Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna og 10. október er Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn.
Af hverju semikomma?
Hún vísar til framhalds; seiglu og vonar.
Við erum öll í sama liðinu!
gulurseptember.is
#gulurseptember


