
30 sep. 2026Haustfundur dómara 2026 fór fram um nýliðna helgi í Smáranum í Kópavogi.
Þetta var tveggja daga fundur með þéttri dagskrá enda margt að samstilla og fara yfir með öllum hópnum.
Þrekpróf, vinnustofur, reglubreytingar, líkamlegur undirbúningur, ábyrgð, áherslur, skriflegt reglupróf og fleira var til dagskrár á þessum árlega fundi dómarastéttarinnar sem heppnaðist vel.
Góð mæting var á fundinn en rúmlega 50 dómarar mættu til að taka þátt í dagskránni.


