
23 okt. 2026
Þjálfarateymi A-landsliðs kvenna hefur valið 15 leikmenn sem koma saman til æfinga í nóvember en fyrri leikjagluggi for-undankeppni EuroBasket 2029 hefst hjá stelpunum okkar þann 11. nóvember næstkomandi í Dublin þegar við mætum Írum í fyrsta leik riðilsins. Í kjölfarið eru heimaleikir gegn Sviss og Aserbaísjan dagana 14. og 17. nóvember.
Leikmennirnir 15 æfa saman í aðdraganda leikjanna og svo eru 12 leikmenn valdir til að ferðast til Írlands í fyrsta leik riðilsins.
Við hlökkum til þessa spennandi landsliðsglugga.
Leikmannahópinn sem um ræðir má sjá á meðfylgjandi mynd með fréttinni.
Seinni leikjaglugginn er leikinn í febrúar.
Áfram ÍSLAND!


