
30 okt. 2026Jóhannes Páll Friðriksson og Rúnar Birgir Gíslason voru sama í
Evrópuverkefninu í Manchester í vikunni. Þar fór fram leikur Manchester og
Bigbank/Kalev frá Eistlandi í FIBA Europe Cup karla.
Það er gaman að segja frá því að í liði Kalev eru tveir leikmenn sem
léku á Íslandi á síðasta tímabili, þeir Jacob Falko sem var í ÍR og Rinalds
Malmanis sem var í KR.
Þeir Ioannis Agrafiotis frá Grikklandi og Nermin Hodzic frá Þýskalandi
dæmdu leikinn með Jóhannesi en Rúnar sinnti eftirlitsstörfum.
Leiknum lauk með sigri heimamanna 87-83 en gestirnir leiddu með 18 stigum í hálfleik.
Mynd af Jóhannesi Páli fylgir fréttinni.


