2 nóv. 2026Bæjarins Beztu deildirnar! 

KKÍ og Bæjarins Beztu Pylsur hafa undirritað samstarfssamning til næstu þriggja ára um að næst efstu deildir karla og kvenna muni frá og með deginum í dag heita Bæjarins Beztu deildirnar. 

Við erum ótrúlega spennt fyrir samstarfinu og framhaldinu með Bæjarins Beztu Pylsum sem munu sömuleiðis sjá um alla veitingasölu á landsleikjum og öðrum viðburðum sambandsins næstu þrjú árin. 

Hingað til höfum við einfaldlega talað um 1.deild karla og 1.deild kvenna sem munu þá hér með heita Bæjarins Beztu deild karla og Bæjarins Beztu deild kvenna.

Spennandi tímar framundan og við stefnum jafnframt að enn frekari umfjöllun um Bæjarins Beztu deildirnar.