13 nóv. 2026Skóflustunga að nýrri og kærkominni þjóðarhöll var tekin í gær, fimmtudaginn 12. nóvember 2026, þar sem fulltrúar yngri kynslóðarinnar tóku fyrstu skóflustungurnar ásamt formönnum sérsambandanna. 

Hulda María Agnarsdóttir leikmaður Njarðvíkur og yngri landsliða Íslands var okkar fulltrúi ásamt Kristni Albertssyni formanni og Hannesi S. Jónssyni framkvæmdastjóra. 

Meðfylgjandi mynd er úr blíðskaparveðrinu sem myndaðist í kringum þennan merkisviðburð.