14 nóv. 2026

Síðastliðinn þriðjudag voru þeir Bjarki Þór Davíðsson og Jón Bender við störf í leik Manchester og Elan Chalon frá Frakklandi sem endaði með sigri Frakkanna 94-73.  

Meðdómarar Bjarka voru Grikkinn Ilias Karpanos og Pólverjinn Dariusz Zapolski en Jón Bender hafði eftirlit með að allt færi rétt fram hjá Bretunum.

Bjarki og Jón voru flottir fulltrúar íslensks körfubolta í þessu verkefni og vonandi höldum við áfram að fá svona verkefni fyrir okkar dómara og eftirlitsmenn.