
18 nóv. 2026Frábær landsleikjagluggi
Frábærum nóvemberglugga A-landsliðs kvenna lauk í gærkvöldi með ótrúlegum 88 stiga sigri gegn Aserbaísjan í Ólafssal en lokatölur voru 129-41. Stelpurnar okkar voru staðráðnar í að enda þennan landsleikjaglugga á toppi riðilsins, í það minnsta fram í febrúar og það sást langar leiðir að þær ætluðu að gera það með stæl. Það varð sannarlega raunin og mikil stemning innan liðsins og leikgleði skein úr andlitum leikmanna.
Það hefur klárlega verið góður stígandi í leik liðsins í þessum þremur leikjum þar sem frábærar rispur í leiknum gegn Írlandi í Dublin gerðu gæfumuninn, frábær heildarframmistaða skilaði sannfærandi sigri gegn Sviss á laugardag og þrennan var fullkomnuð gegn Aserbaísjan í gærkvöldi þar sem Thelma Dís Ágústsdóttir átti sviðið með 13 sögulegum þristum og 41 stigi sem er sömuleiðis stigamet íslensku A-landsliðanna.
Þrista- og stigamet
Thelma var búin að slá þristametið með 11. þriggja stiga körfunni sinni þegar fjórði leikhluti um það bil hálfnaður en hún ákvað að gulltryggja það met með tveimur þristum til viðbótar stuttu síðar. Í lok leiks vantaði hana bara tvö stig til að slá íslenskt landsliðsstigamet og það gerði hún með fyrstu tveggja stiga körfu sinni í leiknum en hún setti þá sniðskot á lokasekúndunum.
Leikurinn í gær kristallaði þá stemningu innan landsliðsins að hægt sé að halda ákefðinni gangandi frá fyrstu til síðustu sekúndu enda breiddin orðin virkilega mikil. Stórskemmtilegur landsliðsgluggi að baki og við hlökkum til leikjanna í febrúar en þar leikum við heimaleik gegn Írlandi í Ólafssal og höldum svo til Sviss og Aserbaísjan í lokaleiki þessa riðils forkeppni EuroBasket 2029.
Stigaskor Íslands í leiknum í gær:
Thelma Dís 41 stig
Helena 15 stig
Anna Ingunn 13 stig
Emma 10 stig
Rebekka Rut 10 stig
Berglind Katla 10 stig
Þóranna Kika 8 stig
Eva Wium 8 stig
Sara Rún 7 stig
Isabella 4 stig
Kristrún Ríkey 3 stig
Innilega til hamingju stelpur og áfram ÍSLAND!
📸Jón Gautur


