
19 nóv. 2026
Það var ekki aðeins A-landslið kvenna sem var í skemmtilegum verkefnum í landsliðsglugganum sem nú var að ljúka. Íslenskir dómarar dæmdu 5 leiki í forkeppni og undankeppni næstu stórmóta kvenna og sinntu sömuleiðis eftirlitsstörfum.
Bjarki Þór Davíðsson dæmdi leik Bretlands og Úkraínu í forkeppni EuroBasket 2027 þar sem Bretar unnu leikinn með flautukörfu. Tæknifulltrúi FIBA í leiknum var Rúnar Birgir Gíslason en meðdómarar Bjarka voru þau Milita Stalaucinskaite frá Litháen og Juho Topias Tuomaal frá Finnlandi.
Jóhannes Páll Friðriksson dæmdi leik Svíþjóðar og Belgíu í undankeppni EuroBasket 2027 en með honum voru Janis Rozenbergs frá Lettlandi og Romana Stojanovic frá Króatíu en tæknifulltrúi FIBA var Luc Vergoosen frá Hollandi. Jóhannes fór svo beint frá Stokkhólmi til Manchester í Englandi til að dæma leik Bretlands og Lúxembourg í undankeppni sömu keppni sem Bretar unnu 87-58. Meðdómarar Jóhannesar voru þau Veronika Obertova frá Slóvakíu og Nermin Hodzic frá Þýsklandi og tæknifulltrúi FIBA var Uros Ivanovic frá Slóveníu.
Stefán Kristinsson ferðaðist til Finnlands þar sem hann dæmdi leik Finna
og Litháa í áðurnefndri EuroBasket 2027 með þeim Elivs Binders-Coders frá Lettlandi og Pawel Pacek frá Póllandi en tæknifulltrúi FIBA var Blanka Konecna frá Tékklandi. Stefán hélt svo í framhaldinu til Eistlands þar sem hann dæmdi leik Eistlands og Rúmeníu í sömu forkeppni og Stelpurnar okkar taka þátt í þessa dagana fyrir EuroBasket 2029 sem Eistar unnu 72-68.
Meðdómarar Stefáns voru Deividas Maciulskis frá Litháen og Juha Penttila frá Finnlandi og tæknifulltrúi FIBA var Nicolas Seigenz frá Frakklandi.


