Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Tölfræðinámskeið KKÍ: Fyrir nýja og núverandi skrásetjara í apríl

5 apr. 2018KKÍ stendur fyrir tölfræðinámskeiði sunnudaginn 15. apríl í Stjörnuheimilinu og Ásgarði í Garðabæ en námskeiðið hentar bæði vönum stötturum sem og nýjum aðilum sem hafa hug á að læra á forritið fyrir næsta tímabil. Námskeiðið verður tvískipt og verður bæði farið yfir skilgreiningar og fræðilega hlutann sem og verklegahlutann í forritinu. Skilgreininahluti námskeiðsins er endurtekið efni frá því í haust. Þeir sem hafa setið það námskeið, hvort sem er í fjarfundi eða á staðnum, ráða hvort þeir mæti. Frá og með næsta tímabili mun uppfærsla eiga sér stað á FIBA Live Stats en núverandi útgáfa FLS 6 verður að FLS 7 og því er nauðsynlegt fyrir alla tölfræðiskrásetjara félaganna að kynna sér nýtt viðmót og læra tímanlega á það fyrir næsta tímabil. Sömu skilgreiningar verða og áður en viðmót forritsins hefur breyst og nauðsynlegt að kynna sér þær tímanlega.Meira
Mynd með frétt

U20 kvenna · Æfingahópur 2018

5 apr. 2018U20 ára lið kvenna tekur þátt í evrópukeppni FIBA Europe í sumar í byrjun júlí. Finnur Jónsson þjálfari liðsins hefur valið æfingahóp 25 leikmanna sem kemur saman eftir miðjan maí til æfinga og mun velja sitt endanlega lið í kjölfarið úr þeim hópi en hópurinn er skipaður leikmönnum sem fæddir eru 1998 og 1999. Eftirtaldir leikmenn skipa æfingahópinn:Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla: Undanúrslitarimma Hauka og KR hefst í kvöld

5 apr. 2018Í kvöld er komið að upphafi undanúrslitaviðureignar Hauka og KR í Domino's deild karla. Liðin munu mætast á heimavelli Hauka, í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í lokaúrslitin í ár og leikur um íslandsmeistaratitilinn. Hægt er að sjá allt um dagskrá leikja, úrslit og stöðu einvíga á kki.is/urslitakeppni. Meira
Mynd með frétt

1. deild karla · Hamar-Breiðablik í lokaúrslitunum 2018

5 apr. 2018Í kvöld hefst lokaeinvígi 1. deildar karla með fyrsta leik Hamars og Breiðabliks í baráttunni um sigur í deildinni og laust sæti í Domino's deild karla að ári. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram á heimavelli Hamars í íþróttahúsinu í Hveragerði. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fylgir sigurvegurum deildarkeppninnar, liði Skallagríms, upp um deild. Leikjaplan úrslitanna verður sem hér segir: Leikur 1 · 05. apríl kl. 19:15: Hamar-Breiðablik Leikur 2 · 08. apríl kl. 19:15: Breiðablik-Hamar Leikur 3 · 11. apríl kl. 19:15: Hamar-Breiðablik Leikur 4 · 13. apríl kl. 19:15: Breiðablik-Hamar (ef þarf) Leikur 5 · 16. apríl kl. 19:15: Hamar-Breiðablik (ef þarf) #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Undanúrslitin hefjast í kvöld

4 apr. 2018Fyrsti leikur undanúrslitanna í úrslitakeppni Domino's deildar karla fer fram í kvöld þegar ÍR og Tindastóll mætast í sínum fyrsta leik í Hertz-hellinum í Seljaskóla. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í lokaúrslitin í ár og leikur um íslandsmeistaratitilinn. Meira
Mynd með frétt

1. deild kvenna · KR-Fjölnir í lokaúrslitunum 2018

4 apr. 2018Í kvöld hefst lokaeinvígi 1. deildar kvenna með fyrsta leik KR og Fjölnis í baráttunni um sigur í deildinni og laust sæti í Domino's deild kvenna að ári. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á KRTV.is. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer upp um deild. Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna: Keflavík-Valur · Leikur 1 í kvöld

3 apr. 2018Keflavík og Valur hefja sitt undanúrslitaeinvígi í kvöld í Domino's deild kvenna þegar liðin mætast í TM höllinni í Keflavík. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á kki.is. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í lokaúrslitin. Allt um leikjaplan, úrslit og stöðu einvíga má sjá á úrslitakeppnissíðunni hérna.Meira
Mynd með frétt

Leikdagar klárir í undanúrslitum Domino´s deildar karla

28 mar. 2018Búið er að gefa út leikdaga í undanúrslitum Domino´s deildar karla.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 28.03.2018

28 mar. 2018Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eftirfarandi mál í vikunni.Meira
Mynd með frétt

Einhugur í stjórn FIBA Europe

28 mar. 2018Eins og kom fram fyrir helgi þá fundaði stjórn FIBA Europe á Íslandi um síðustu helgi. Á vef FIBA er samantekt af fundinum og heimsókn stjórnar til Íslands. Þar kemur m.a. fram einhugur stjórnar FIBA Europe að halda áfram keppni hjá landsliðunum í gluggum. Hafnar stjórnin afstöðu Euroleague sem hún telur skaða evrópskan körfubolta.Meira
Mynd með frétt

Landslið U16 og U18 stúlkna og drengja · Sumar 2018

28 mar. 2018Þjálfarar U16 og U18 liða drengja og stúlkna hafa valið sín 12 manna landslið fyrir verkefni sumarsins. Þjálfararnir boðuðu til sín æfingahópa um jól og áramót og hafa fylgst með leikmönnum í leikjum og á fjölliðamótum í vetur og hafa nú valið sín endanleg lið fyrir verkefnin framundan. Liðin fjögur í U16 og U18 drengja og stúlkna fara öll á NM í Finnlandi í lok júní og síðan hvert og eitt í Evrópukeppni FIBA í sínum aldursflokki síðar í sumar. Æfingar liðanna hefjast eftir að úrslitum yngri flokka á íslandsmótinu lýkur, sem fram fara um miðjan maí og munu þjálfarar boða sína leikmenn til þeirra þegar nær dregur. Leikmenn U16 og U18 liðanna koma frá eftirtöldum félögum: Breiðablik 2 Fjölnir 1 Grindavík 6 Hamar 2 Haukar 2 ÍR 3 Keflavík 8 KR 6 Njarðvík 4 Skallagrímur 1 Stjarnan 4 Valur 4 Vestri 2 Þór Akureyri 2 Þór Þorlákshöfn 1 Landsliðin eru skipuð eftirtöldum leikmönnum:Meira
Mynd með frétt

ODDALEIKUR! 8-liða úrslit Domino's deildar karla í kvöld

28 mar. 2018Haukar og Keflavík leika hreinan úrslitaleik í kvöld um laust sæti í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla en liðin hafa hvort um sig unnið tvo leiki og því þarf hreinan úrslitaleik til að skera úr um sigurvegara einvígisins. Leikurinn hefst kl. 19:15 í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði og má búast við fjölmenni á leiknum og því vert að benda áhorfendum á að mæta tímanlega. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 SportMeira
Mynd með frétt

Molduxamótið 2018

27 mar. 2018Körfboltafélagið Molduxar hafa sent frá sér eftirfarndi fréttatilkynningu: Körfuboltafélagið Molduxar styrkir fræðslu- og forvarnarátak Krabbameins­félagsins vegna karla og krabbameins með þessum líka æðislegu sokkakaupum. Molduxarnir hvetja önnur félög og hópa að gera það sama. Einnig ætlar Molduxar að minna á hið árlega Molduxamót í hinni fallegu íþrótt körfubolta, sem verður haldið laugardaginn 12. maí 2018 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu). Mótið verður með sama sniði og á síðasta ári og verður boðið uppá þrjá keppnisflokka: Karlar 40+ ára Karlar 30+ ára KvennaflokkurMeira
Mynd með frétt

Domino's deild karla í kvöld: Keflavík-Haukar · Leikur 4

26 mar. 2018Í 8-liða úrslitum karla mætast Keflavík og Haukar í kvöld í TM-höllinni í Keflavík í sínum fjórða leik. Staðan er 2-1 eftir sigur Keflavíkur í síðasta leik. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í undanúrslitin þar sem ÍR, Tindastóll og KR hafa tryggt sér sæti. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport og svo verður að leik loknum Körfuboltakvöld með uppgjör úr leik kvöldsins og leik Stjörnunnar og ÍR sem fram fór í gær. Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Úrslitakeppnin 2018

26 mar. 2018Um helgina lauk deildarkeppninni í Domino's deild kvenna 2017-2018 og ljóst hvaða lið leika til úrslita í ár. Fjögur lið fara í úrslit og leika heima og að heiman þar til annað liðið hefur unnið þrjá leiki og kemst þar með í lokaúrslitin. Haukar urðu deildarmeistarar, Keflavík varð í öðru sæti, Valur í því þriðja og Skallagrímur tók fjórða og síðasta sætið í úrslitunum í ár. Það verða því Haukar og Skallagrímur sem mætast og Keflavík og Valur. Á morgun þriðjudag verður haldinn blaðamannfundur fyrir úrslitakeppnina í Domino's deild kvenna sem hefst svo strax eftir páska eða þann 2. aprílMeira
Mynd með frétt

8-liða úrslit karla: Stjarnan-ÍR í kvöld · Leikur 4

25 mar. 2018Í kvöld mætast í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla Stjarnan og ÍR í fjórða leik sinnar viðureignar. Leikurinn hefst kl. 19:15 í Ásgarði í Garðabæ. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á kki.is. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir ÍR en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram í undanúrslitin. Sjáumst á vellinum! #korfubolti ​Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 24.03.2018

24 mar. 2018Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eitt mál í dag.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Lokaumferðin 2017-2018

24 mar. 2018Í dag kl. 16:30 fara fram fjórir síðustu leikir deildarkeppni Domino's deildar kvenna og þá ræðst endanleg röðun liða fyrir úrslitakeppnina sem framundan er. Stöð 2 Sport verður í Ásgarði í Garðabæ og sýnir beint leik Stjörnunnar og Vals. Allir leikirnir verða svo í lifandi tölfræði á kki.is.Meira
Mynd með frétt

1. deild kvenna: KR-Grindavík í dag - Leikur 3

24 mar. 2018KR og Grindavík eigast við í þriðja sinn í dag kl. 16:30 í DHL-höllinni í Frostaskjóli. Staðan í einvígi liðanna er 2-0 fyrir KR en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslitin í ár og leikur um sæti í Domino's deildinni að ári. Leikurinn verður í lifandi tölfræðilýsingu á kki.is #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 23.03.2018

23 mar. 2018Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í dag.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira