6 jún. 2001Íslenska landsliðið varð að sætta sig við tap gegn Sviss í undankeppni Evrópumóts landsliða. Leiknum var að ljúka og sigruðu Svisslendingar með 77 stigum gegn 68. Stigahæstir í íslenska liðinu voru Helgi Jónas með 20 stig, Fannar með 17, Jón Arnór 11 og Friðrik Stefánsson með 9. Fannar tók flest fráköst eða 7 talsins, Helgi Jónas var með 5 og Friðrik Stefánsson með 3. Íslenska liðið mætir Írum á laugardag í öðrum leik liðsins í undankeppni Evrópumótsins, en Írar unnu Finna í kvöld 70-68.