
26 okt. 2026KKÍ átti fjóra fulltrúa á vel heppnuðum Norðurlandafundi í Kaupmannahöfn í Danmörku þann 17. október síðastliðinn. Um er að ræða árlegan fund sem var einmitt haldinn hér á landi á síðasta ári en Norðurlandaþjóðirnar skiptast á að vera gestgjafar. Næsti fundur er haldinn í Stokkhólmi í Svíþjóð í október 2027 og munum við senda góða fulltrúa til Svíþjóðar. Fundurinn er notaður til að styrkja tengslin á milli Norðurlandanna ásamt því að ræða ýmis mál geta unnist enn betur innan FIBA og FIBA Europe í sameinuðum krafti körfuknattleikssambanda Norðurlandaþjóðanna.
Fundurinn í ár var gagnlegur fyrir margar sakir enda ýmis málefni á dagskrá sem fulltrúar Norðurlandaþjóðanna ræddu sín á milli á nokkrum góðum vinnufundum. Málefni 3x3 fengu gott brautargengi enda er það mjög spennandi angi nútímakörfubolta sem við hjá KKÍ hlökkum til að skoða enn frekar og í kjölfarið vinna með í góðu samstarfi við nágrannaþjóðir okkar.
Fyrir utan almennar góðar tengingar við kollega á Norðurlöndunum voru tvær tengingar sérstaklega skemmtilegar fyrir okkar fulltrúa en á fundinum voru Jesper Winter Sörensen sem varð Íslandsmeistari með KR árið 2000 en hann er framkvæmdastjóri danska sambandsins og svo okkar eini sanni Peter Öqvist þjálfari A-landsliðs karla á árunum 2011-2013 en hann er framkvæmdastjóri sænska sambandsins. Virkilega skemmtilegur vinkill að hitta þessa snillinga sem rifjuðu upp góða tíma frá árum sínum innan íslenskrar körfuboltalögsögu.
Myndin sem fylgir fréttinni er svokölluð fjölskyldumynd af öllum þátttakendahópnum en þar á meðal eru okkar fjórir fulltrúar: Kristinn formaður, Hannes framkvæmdastjóri, Hörður afrekssstjóri og Ingvar markaðs- og kynningarfulltrúi.


