
23 jún. 2026
Peter Öqvist, fyrrverandi landsliðsþjálfari karla, var staddur á landinu á dögunum þegar FIBA Europe þingið var haldið í Reykjavík. kki.is tók hann tali og í ljós kemur að Öqvist fylgist enn mjög vel með því sem er að gerast í körfunni á Íslandi.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er virkilega gott að koma aftur til Íslands en ég hefði viljað hafa tíma til að staldra lengur við og ferðast aðeins um landið. Ég skammast mín líttillega fyrir að hafa ekki haft samband í þetta skiptið við gamla samstarfsfólkið mitt og gömlu leikmennina frá því ég var landsliðsþjálfari. Þegar ég kom til Íslands á síðasta ári vegna fundar hjá Norðurlandaþjóðunum þá hafði ég þó ögn meiri tíma til að hitta gamla vini. Mér finnst alltaf gott að koma til Íslands vegna þess að ég á margar hlýjar og góðar minningar frá árunum sem landsliðsþjálfari,“ segir Öqvist sem í dag starfar sem framkvæmdastjóri sænska körfuknattleikssambandsins og sat áður í stjórn sambandsins í heimalandinu.
Svíinn hefur fylgst grannt með íslenska karlalandsliðinu frá því hann stýrði því sjálfur frá 2011 til 2014. „Ég fylgdist að sjálfsögðu vel með landsliðinu í framhaldinu og geri enn. Ég á það til að senda Craig [Pedersen núverandi landsliðsþjálfara] skilaboð eftir leiki. Ég naut þess sérstaklega að sjá sigurinn gegn Litháum í síðasta landsleikjaglugga í vetur,“ segir Öqvist en leikmennirnir sem komu Íslandi í úrslit í lokakeppni í fyrsta sinn í Berlín árið 2015 voru mikið til sömu leikmenn og Öqvist hafði stýrt í landsliðinu.
„Að sjá þá ná þeim áfanga fylgdi stórkostleg tilfinning fyrir mig. Að mínu mati hafa Craig, og samstarfsfólk hans, unnið frábærlega úr því sem við fórum af stað með á sínum tíma. Hann þróaði liðið og gerði það betra. Það var virkilega skemmtilegt að fylgjast með liðinu í sjónvarpi á EM 2015 en það var enn skemmtilegra fyrir mig þegar Ísland var með á EM 2017 því þá hafði ég tök á því að fara til Helsinki. Síðasti leikurinn í riðlinum á milli Finna og Íslendinga var stórkostleg stund fyrir körfuboltann á Norðurlöndunum. Höllin var stútfull og þegar finnsku stuðningsmennirnir tóku undir víkingaklappið hjá íslensku stuðningsmönnunum þá varð til einhver fegurð sem maður gleymir seint. Ég passa raunar enn upp á myndskeiðið sem ég tók í því andrúmslofti.“
Aðrir geta lært af Íslendingum
Íslenskir íþróttaunnendur gera miklar kröfur þegar Ísland spilar á alþjóða vettvangi eins og þekkt er. Stundum áttum við okkur ekki á því hversu mikla athygli árangurinn vekur erlendis.
„Árangur karlalandsliðsins frá 2015 er með algerum ólíkindum, sérstaklega fyrir jafn fámenna þjóð og Íslendinga. Þegar við leggjum saman árangurinn hjá Íslendingum í körfunni, fótboltanum og handboltanum þá er þetta einstakt. Afrek sem þetta er allrar athygli vert og af þessu gætu aðrar þjóðir væntanlega dregið lærdóm, til dæmis ef skoðað er hvernig unnið er í grasrótinni. Aðrar þjóðir vinna hlutina oft öðruvísi hvað varðar afreksþjálfun. Hjá okkur í Svíþjóð er allt annað vinnulag varðandi börnin og yngri flokkana. Hjá yngstu iðkendunum eru ekki jafn menntaðir þjálfarar og á Íslandi. Uppbyggingin hjá okkur er því frábrugðin en Íslendingum gengur virkilega vel í körfunni og það er ekki hægt annað en að hrífast af því.“


