23 jún. 2026
U18 ára landslið karla hélt í gærmorgun út til Svíþjóðar á Norðurlandamótið (NM) en þeir hefja leik í dag gegn Eistlandi og við hlökkum til að fylgjast með liðinu næstu dagana.

Bein streymi frá leikjunum og upplýsingar um mótið má finna hér: https://baskettv.se/nordicchamps-swe/
Leikjadagskrá U18 ára karla:
23 júní kl 16:45 Ísland - Eistland
24 júní kl 16:45 Ísland - Danmörk
25 júní kl 17:00 Ísland - Noregur
27 júní kl 18:30 Ísland - Finnland
28 júní kl 13:30 Ísland – Svíþjóð
Áfram Ísland 🇮🇸