3 júl. 2026
U16 ára landslið kvenna hélt í gærmorgun út til Finnlands, nánar tiltekið til Kisakallio, á Norðurlandamótið (NM) en stelpurnar hefja leik gegn Noregi í dag, föstudag og við hlökkum til að fylgjast með liðinu næstu dagana.
Bein streymi frá leikjunum og upplýsingar um mótið má finna hér:
https://koristv.fi/nordicchamps/games/event/wu16-kansainvaeliset-2026-2027/schedule

 

Livestat frá leikjunum má svo finna hér:

https://tulospalvelu.basket.fi/category/44060!kvkp2627/group/302998

Leikjadagskrá U16 ára kvenna á íslenskum tímum:
3. júlí kl. 11:10 ÍSLAND - Noregur
4. júlí kl. 13:40 ÍSLAND - Svíþjóð
5. júlí kl. 11:10 ÍSLAND - Eistland
7. júlí kl. 13:55 ÍSLAND - Danmörk
8. júlí kl. 12:10 ÍSLAND - Finnland
U16 ára landslið kvenna skipa:
Björk Karlsdóttir
Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir
Elva Björg Ragnarsdóttir
Eva Bryndís Ingadóttir
Eva Ingibjörg Óladóttir
Heiðrún Lind Sævarsdóttir
Hildur E. Kristinsdóttir
Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir
Lísbet Lóa Sigfúsdóttir
Margrét Dúna Guðmundsdóttir
Oddný Hulda Einarsdóttir
Valdís Helga Alexandersdóttir
Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson og honum til aðstoðar eru Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir.
Dómarar frá Íslandi sem dæma á U16 í Finnlandi í sumar eru Arnar Þór Þrastarson og Jessie Rosallosa.
Áfram Ísland!