
3 júl. 2026U20 ára landslið kvenna er mætt til Litháen þar sem stelpurnar okkar leika í afar sterkri A-deild Eurobasket (EM) í Alytus næstu dagana.
Leikjaplanið, riðlaskiptinguna og aðrar upplýsingar má finna hér á opinberri heimasíðu mótsins:
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u20-womens-eurobasket-2026
Leikjadagskrá Íslands í C-riðli mótsins á íslenskum tímum er eftirfarandi:
4.júlí kl. 15:00 ÍSLAND - Serbía
5.júlí kl. 10:00 ÍSLAND - Pólland
7.júlí kl. 17:30 ÍSLAND - Ítalía
16-liða útsláttarkeppni hefst miðvikudaginn 8.júlí og mótinu lýkur sunnudaginn 12.júlí.
U20 ára landslið kvenna er skipað eftirfarandi leikmönnum:
Arndís Rut Matthíasdóttir
Berglind Katla Hlynsdóttir
Elísabet Ólafsdóttir
Emma Karólína Snæbjarnardóttir
Hanna Gróa Halldórsdóttir
Heiðrún Hlynsdóttir
Hulda Agnarsdóttir
Jóhanna Ágústsdóttir
Kolbrún María Ármannsdóttir
Rebekka Rut Steingrímsdóttir
Sara Björk Logadóttir
Þjálfari liðsins er Emil Barja og honum til aðstoðar eru Arnór Gauti Ragnarsson og Margrét Ósk Einarsdóttir.
Við hlökkum til að fylgjast með stelpunum okkar á þessu gríðarlega sterka U20 EuroBasket móti FIBA.
Áfram Ísland!


