
21 júl. 2026
Strákarnir okkar í U20 ára landsliði karla áttu magnað mót í Bratislava í Slóvakíu síðustu daga þegar þeir léku í B-deild EuroBasket. Liðið átti hreint út sagt magnað mót þar sem afar sterk liðsheild, magnaðar einstaklingsframmistöður, frábært utanumhald þjálfarateymis og góður stuðningur í stúkunni skilaði að lokum silfurmedalíu um hálsa drengjanna sem lögðu hart að sér til að tryggja Íslandi sæti í A-deild keppninnar að ári þar sem 16 bestu lið álfunnar mæta til leiks. Liðið gafst aldrei upp og kom oftar en ekki til baka ef á reyndi.
Einstaklingsframmistaða Viktors Jónasar Lúðvíkssonar stóð upp úr og var hann verðskuldað valinn í úrvalslið mótsins. Viktor Jónas skoraði að meðaltali 16,9 stig í leik, tók að meðaltali 12,1 frákast, átti 3,4 stoðsendingar, 1,8 stolinn bolta, 1,5 varið skot og samanlagt skilaði hann að meðaltali 23,8 framlagsstigum. Innilega til hamingju með viðurkenninguna Viktor Jónas.
Þjálfarateymið er búið að leggja mikið í verkefnið til að ná sem lengst og til merkis um það er aðkoma Ankit Wadera að verkefninu en hann vinnur fyrir 905 Raptors, sem er G-league lið Toronto Raptors úr NBA deildinni. Ankit var mikilvægur partur af teymi liðsins og sá um að greina leikmenn andstæðinganna (player scouting). Þjálfararnir þakka Ankit kærlega fyrir hans aðstoð og aðkomu að árangrinum.
Við óskum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með árangurinn á mótinu!
Úrslit leikjanna í B-deild EuroBasket í Bratislava í Slóvakíu 2026:
Riðlakeppnin C-riðill:
ÍSLAND 97 - 63 Armenía
ÍSLAND 83 - 57 Kýpur
ÍSLAND 96 - 79 Kósovó
ÍSLAND 72 - 75 Portúgal
ÍSLAND 77 - 80 Bosnía
ÍSLAND 97 - 63 Armenía
ÍSLAND 83 - 57 Kýpur
ÍSLAND 96 - 79 Kósovó
ÍSLAND 72 - 75 Portúgal
ÍSLAND 77 - 80 Bosnía
8-liða úrslit:
ÍSLAND 79 - 76 Búlgaría
4-liða úrslit:
ÍSLAND 84 - 76 Svíþjóð
ÍSLAND 84 - 76 Svíþjóð
Úrslitaleikur:
ÍSLAND 64 - 74 Úkraína
ÍSLAND 64 - 74 Úkraína
20 ára landslið karla sem lék í Bratislava var þannig skipað:
Atli Hrafn Hjartarson - Stjarnan
Ásmundur Múli Ármannsson - Höttur
Birgir Leifur Irving - USA
Birgir Leó Halldórsson - Sindri
Frosti Valgarðsson - Haukar
Guðlaugur Heiðar Davíðsson - Fjölnir
Kristófer Breki Björgvinsson - Haukar
Lars Erik Bragason - KR
Lúkas Aron Stefánsson - Hamar
Magni Thor Grissom - USA
Magnús Dagur Svansson - Sindri
Viktor Jónas Lúðvíksson - Stjarnan
Þjálfari liðsins er Kjartan Atli Kjartansson og honum til aðstoðar voru Thomas Cory og Gunnar Ingi Sverrisson.
A-deildarþátttaka í sögulegu samhengi
Þetta er í sjötta sinn sem íslenskt landslið fer upp úr B-deild í A-deild yngri landsliða. Þetta er í þriðja sinn sem U20 karla nær þeim árangri, en U20 kvenna hefur sömuleiðis komist einu sinni úr B-deild ásamt U18 og U16 drengja.
U20 ára lið karla hefur mest leikið þrjú sumur í röð í A-deildinni (2023, 2024 og 2025). Kvennaliðið okkar í U20 jafnar þann árangur næsta sumar en þá verða þær búnar að vera í A-deildinni 2025, 2026 og 2027.
Bæði U20 ára lið karla og kvenna verða í A-deildinni næsta sumar sem er magnað.
Þetta sumar hefur verið frábært og við hlökkum til framtíðarinnar!
Áfram ÍSLAND!
#eurobasket #u20eurobasket
📸FIBA


