Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Maltbikarinn: Fyrstu titlar í hús

12 jan. 2018Nú eru undanúrslitin búin í Maltbikarvikunni og hér eftir verða aðeins krýndir bikarmeistarar. Í kvöld urðu Fjölnir og Grindavík bikarmeistarar en keppt var í 10. flokki drengja og 10. flokki stúlkna.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarinn: Úrslit yngri flokka í kvöld · 10. flokkar drengja og stúlkna

12 jan. 2018Í dag hefjast Maltbikarúrslit yngri flokka en það eru tveir úrslitaleikir á dagskránni í kvöld í Laugardalshöllinni, en það eru úrslitaleikir í 10. flokki drengja og stúlkna. Bein útsending á netinu: KKÍ sendir út beint á YouTube-rás (youtube.com/user/KKIkarfa) sinni beint frá öllum úrslitaleikjum yngri flokka föstudag og sunnudag, að undanskildum leikjum Unglingaflokks karla og Stúlknaflokks, sem verða í beinni á RÚV á sunnudaginn. Leikskrá: Leikskrá fyrir öll liðin sem keppa dagana 10.-14. janúar er að finna á netinu í rafrænu formi Aðgangseyrir á bikarúrslit yngri flokka: Aðgangseyrir verður 1.000 kr. fyrir 16 ára og eldri sem koma í Laugardalshöllina til að horfa á leikina. Sá miði gildir á alla sjö bikarúrslitaleiki helgarinnar föstudag og sunnudag. Dagskráin í kvöld · Föstudagur 12. janúar ⏰18:00 · 10. flokkur drengja 🏀Fjölnir-Stjarnan ⏰20:15 · 10. flokkur stúlkna 🏀Keflavík-Grindavík #maltbikarinn #korfubolti Meira
Mynd með frétt

FIBA: Sigmundur Már og Rúnar Birgir saman að störfum · Skrifuðu nýjan kafla í íslenska körfuknattleikssöguna

12 jan. 2018Ísland átti tvo fulltrúa í gær að störfum í sama leiknum á vegum FIBA í EuroCup kvenna í Riga í Lettlandi. Þar sem áttust við heimakonur í TTT Riga gegn Mersin frá Tyrklandi. Það voru þeir Sigmundur Már Herbertsson, FIBA dómari, og Rúnar Birgir Gíslason, eftirlitsmaður FIBA, sem voru saman í störfum í gær og var þetta í fyrsta sinn sem Ísland á tvo fulltrúa að störfum á sama leiknum á vegum FIBA, og því um sögulegan viðburð að ræða í íslenzkri körfuknattleikssögu. Meðdómarar Sigmundar Más voru þeir Tamas Benczur (aðaldómari) frá Ungverjalandi og Vladyslav Isachenko frá Úkraínu. ​ Um hörkuspennandi leik var að ræða, en honum lauk 62:63 fyrir gestina frá Tyrklandi. ​ Meira
Mynd með frétt

Maltbkarinn · Úrslitaleikir karla og kvenna á laugardaginn

12 jan. 2018Konur: Í gær fóru fram undanúrslitaleikir Maltbikars kvenna og því ljóst núna hvaða lið leika til úrslita 2018 hjá körlum og konum. Fyrri leikur gærdagsins var viðureign Skallagríms og Njarðvíkur. Leikurinn var spennandi og skemmtilegur og réðust úrslitin í lokasókn leiksins. Þar hafði Njarðvík betur 75:78 og leika því til úrslita á laugardaginn kemur. Meira
Mynd með frétt

Maltbikarinn · Undanúrslit kvenna

11 jan. 2018Í dag er komið að undanúrslitum kvenna í Maltbikarnum 2018 en í gær léku karlaliðin í undanúrslitunum. Leikir dagsins fara fram í Laugardalshöllinni og er miðasala er hjá félögunum til hádegis og svo á tix.is eftir það. Fyrri leikur dagsins er leikur Skallagríms og Njarðvíkur sem mætast kl. 17:00 og svo þar á eftir kl. 20:00 mætast Keflavík og Snæfell. Sigurvegararnir mætast svo í úrslitaleik Maltbikarsins á laugardaginn kemur kl. 16:30. Beint á RÚV Báðir leikir kvöldsins verða í beinni á RÚV kl. 17 og RÚV2 kl. 20:00, sem og úrslitaleikurinn á laugardaginn. Lifandi tölfræði verður frá báðum leikjunum að venju á sínum stað á kki.is.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarúrslitin: Dómarar undanúrslita kvenna

10 jan. 2018Búið er að raða dómurum á undanúrslitaleiki kvenna annað kvöld.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarinn · Undanúrslit karla í dag!

10 jan. 2018Í dag er komið að upphafi Maltbikarsúrslitanna 2018 og eru það leikirnir í undanúrslitum karla sem fara fram í dag en allir leikir vikunnar fara fram í Laugardalshöllinni. Miðasala er hjá félögunum til hádegis og svo á tix.is eftir það. KR og Breiðablik mætast kl. 17:00 í fyrri leik dagsins og svo þar á eftir kl. 20:00 mætast Haukar og Tindastóll. Sigurvegararnir mætast svo í úrslitaleik Maltbikarsins á laugardaginn kemur kl. 13:30. Beint á RÚV Báðir leikir kvöldsins verða í beinni á RÚV kl. 17 og RÚV2 kl. 20:00, sem og úrslitaleikurinn á laugardaginn. Lifandi tölfræði verður frá báðum leikjunum að venju á sínum stað á kki.is.​Meira
Mynd með frétt

Maltbikarúrslitin: Dómarar undanúrslita karla

9 jan. 2018Búið er að raða dómurum á undanúrslitaleiki karla annað kvöld.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarúrslitin · Beinar útsendingar

9 jan. 2018Allir leikir Maltbikarsúrslitanna 2018 verða sýndir beint í sjónvarpinu og á netinu. Að venju sýnir RÚV úrslitaleiki meistaraflokkanna á laugardeginum og RÚV sýnir einnig alla fjóra undanúrslitaleikina á miðvikudeginum og fimmtudeginum sem og tvo leiki frá úrslitum yngri flokka á sunnudeginum.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarúrslitin hefjast á morgun · Dagskráin 10.-14. janúar

9 jan. 2018Á morgun miðvikudag, hefjast Maltbikarúrslitin 2018 í Laugardalshöllinni, þegar undanúrslit meistaraflokks karla, verða leikinn kl. 17:00 og 20:00. KR og Breiðablik mætast kl. 17 og Haukar og Tindastóll mætast kl. 20:00. Á fimmtudaginn leika svo kvennaliðin í undanúrslitunum, Skallagrímur og Njarðvík kl. 17 og svo Keflavík og Snæfell kl. 20. RÚV sýnir alla leikina beint, fyrst á RÚV leikina kl. 17 og svo RÚV2 leikina kl. 20.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarúrslitin 2018 · 8 félög fra 7 sveitarfélögum

8 jan. 2018Í undanúrslitum karla og kvenna í Maltbikarnum í ár munu 8 félög frá 7 sveitarfélögum mætast og endurspeglar það hversu öflug félögin í körfuboltanum eru hringin í kringum landið. Körfuboltinn er einn útbreiddasta íþróttagrein landsins og t.d eru þessi 8 félög sem keppa í ár frá 7 héraðs/íþróttabandalögum eða íþróttahérðum. Landinu er skipt í 25 íþróttahéruð og því er það góður árangur að sjö þeirra muni mæta í Laugardalshöllina í undanúrslitum meistaraflokkana. Liðin sem mætast í undanúrslitunum eru: Konur: Skallagrímur (Borgarnes-UMSB) Njarðvík (Reykjanesbær-ÍRB) Keflavík (Reykjanesbær-ÍRB) Snæfell (Stykkishólmur-HSH) Karlar: KR (Reykjavík-ÍBR) Breiðablik (Kópavogur-UMSK) Haukar (Hafnarfjörður-ÍBH) Tindastóll (Sauðárkrókur-UMSS) #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Maltbikarinn · Blaðamannafundur í dag fyrir undanúrslit og úrslitin í vikunni

8 jan. 2018Í dag mánudaginn 8. janúar kl. 12:15 verður blaðamannafundur vegna bikarúrslitavikunnar haldinn og fer fundurinn fram fundarsölum nýju Laugardalshallarinnar á 2. hæð. Á fundinum hafa fjölmiðlar verið boðaðir sem og þjálfari og leikmaður frá hverju félagi sem á sæti í undanúrslitaleikjum karla og kvenna. Farið verður yfir leikina framundan sem og alla körfuboltahátíðina sem framundan er með bikarúrslitum yngri flokka sem einnig fara fram frá föstudegi og yfir á sunnudag. #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Domino's deildir karla og kvenna í dag

7 jan. 2018Í dag fara fram leikir í Domino’s deild karla og Domino’s deild kvenna. Tvíhöfði verður á Ásvöllum í Hafnarfirði í DB Schenkerhöllinni þegar tveir leikir fara fram þegar Haukastúlkur taka á móti Stjörnunni og svo leik strákarnir gegn Grindavík þar á eftir. Leikur Hauka og Grindavíkur verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikir dagsins og kvöldsins eru: Domino’s deild kvenna ⏰17.45 🏀Haukar-Stjarnan Domino’s deild karla ⏰19:15 🏀KR-Stjarnan 🏀Höttur-ÍR 🏀Tindastóll-Valur 🏀Keflavík-Þór Ak. ⏰20:00 🏀Haukar-Grindavík · Sýndur beint á Stöð 2 Sport #korfubolti #dominos365 Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna í dag - 3 leikir

6 jan. 2018Þrír leikir fara fram í dag kl 16:30 í Domino's deild kvenna. Njarðvík fær Skallagrím í heimsókn, Snæfell tekur á móti Keflavík og Valur og Breiðablik mætast í Valshöllinni. Stöð 2 Sport verður í Hólminum og sýnir beint frá leik Snæfells og Keflavíkur.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarinn: Miðaafhending til handhafa aðgöngukorta í dag 5. janúar

5 jan. 2018Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir bikarúrslitaleikina sem fram fara miðvikudaginn 10. janúar (undanúrslit karla), fimmtudaginn 11. janúar (undanúrslit kvenna) og úrslitaleikina 13. janúar. Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu föstudaginn 5. janúar á skrifstofu KKÍ á milli kl. 09:00 og 16:00. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli kl. 09:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla í kvöld · Þór Þ.-Grindavík í beinni á Stöð 2 Sport

5 jan. 2018Tveir leikir fara fram í kvöld í 12. umferð Domino's deild karla þegar Þór Akureyri fær Hauka í heimsókn kl. 19:15 og Þór Þ. tekur á móti Grindavík kl. 20:00. Leikur Þórs Þ. og Grindavíkur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kl. 22:00 er svo komið að Körfuboltakvöldi þar sem allir leikir umferðarinnar verða gerðir upp. #korfubolti #dominos365Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Fjórir leikir í kvöld

4 jan. 2018Í kvöld fara fram fjórir leikir í Domino's deild karla kl. 19:15 en þetta eru fyrstu leikirnir í seinni umferð deildarinnar. Einn leikur verður í beinni á Stöð 2 Sport og það verður leikur ÍR og Tindastóls sem fram fer í Hertz-Hellinum í Seljaskóla. Leikir kvöldsins: 🏀 Valur-Keflavík 🏀 ÍR-Tindastóll · Sýndur beint á Stöð 2 Sport 📺 🏀 Stjarnan-Höttur 🏀 Njarðvík-KR #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Leiktími bikarleikja yngri flokka klár

4 jan. 2018Búið er að gefa út leiktíma og dagsetningar á bikarúrslitaleiki yngri flokka en þeir fara fram samhliða úrslitum meistaraflokkanna.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 03.01.2018

3 jan. 2018Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál á fundi sínum í vikunni.Meira
Mynd með frétt

Maltbikarinn: Bikarpassi á alla leiki á tix.is

3 jan. 2018Maltbikarinn 2018 nær hámarki í næstu viku þegar undanúrslit karla og kvenna verða leikin á miðvikudaginn og föstudaginn 10.-11. janúar og svo úrslitaleikirnir á laugardeginum 13. janúar. Að auki fara fram Maltbikarúrslit yngri flokka á föstudegi og sunnudeginum og því körfuboltahátíð framundan í upphafi ársins. Fyrir undanúrslit og úrslit meistaraflokkanna er hægt að kaupa Maltbikar-passa á alla 6 leikina. Það eru tveir undanúrslitaleikir karla á miðvikudeginum kl. 17:00 og 20:00, tveir undanúrslitaleikir kvenna á fimmtudeginum kl. 17:00 og 20:00 og svo úrslitaleikina sjálfa á laugardeginum kl. 13:30 og 16:30. Maltbikar-passann er hægt að kaupa hérna á tix.is.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira