Rauður

 

Rauður er fyrir 9 ára krakka (4.bekkur). 

Driplinu er ætlað að auka tæknilega færni barna og auka áhuga á tækniæfingum.
Driplinu er skipt í þrjá aldursflokka og hver aldursflokkur ber einn lit.


Hver litur inniheldur 17 æfingar sem sýndar eru í 7 myndböndum. Æfingarnar eru settar upp þannig að iðkandi á að geta æft sig hvar sem er, jafnt inni sem úti, einn eða með fleirum.

Til að ná góðri færni í æfingum Driplsins þarf iðkandi að sinna æfingum jant og þétt yfir veturinn. Taka skal fram að þetta eru grunnæfingar í körfuknattleik og eitthvað sem ætti að vinna með í gegnum allan körfuboltaferilinn.  

Hér að neðan má ná í efni til að prenta út.

Rauður æfingar

Driplið veggspjald (væntanlegt)

 

Knattþrautir

  • Slá í bolta 20x
  • Kringum heiminn 2x5 í hvora átt
  • Kringum fætur í áttu 2x5 í hvora átt


 

Knattrak á staðnum

  • Dripla á staðnum 10x hægri og 10x vinstri
  • Krossa yfir 10x
  • JÓJÓ dripl 10x hægri og 10x vinstri


 

Knattrak á ferð

  • Svig 6 ferðir
  • Hika 6 ferðir
  • Krossa yfir 6 ferðir


 

Sniðskot

  • Hægri 6x og vinstri 6x
  • Frá vítalínu, skora 6x á 30 sek


 

Skot

  • Formskot 10x
  • Formskot, hopp stopp 10x
  • Víti hitta 2 af 5


 

Sendingar

  • Brjóstsendingar 10x
  • Gólfsendingar 10x


 

Vörn

  • Varnarrennsli 4 hringir (kassi 4x4)


 

Hér er hægt að horfa á öll myndböndin í einu.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira