Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

NM2018: Dagur 1 – finnski dagurinn

28 jún. 2018Norðurlandamótið 2018 hefst í dag. Öll liðin spila alla daga og við hefjum leik á finnska deginum. Meira
Mynd með frétt

Allir leikir NM í beinni og lifandi tölfræði

27 jún. 2018Íslensku U16 og U18 ára liðin eru stödd í Kisakallio í Finnlandi til að keppa á norðurlandamóti. Aðstaðan sem liðin hafa er alveg til fyrirmyndar hvort sem það er til æfinga eða keppni. Liðin komu í gær og æfðu þá sem og þau taka tvær æfingar í dag.Meira
Mynd með frétt

Skrifstofa KKÍ lokuð

27 jún. 2018Skrifstofa KKÍ verður lokuð til 4. júlí vegna vinnuferða starfsmanna erlendis og sumarleyfa. Hægt er að ná í starfsmenn með því að senda póst á kki@kki.is. Ef að málið er áríðandi er hægt að ná í starfsmenn í síma. Hægt er að finna símanúmer starfsmanna hér á heimasíðunni. Meira
Mynd með frétt

Tveir nýliðar í HM hópi Craigs

25 jún. 2018Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla, tilkynnti í hádeginu hvaða 12 leikmenn skipa lið Íslands í leikjunum gegn Búlgaríu og Finnlandi í undankeppni HM ytra dagana 29. júní og 2. júlí. Engin Jón Arnór Stefánsson er í hópnum að þessu sinni en hann er frá vegna meiðsla. Tveir nýliðar eru í hópnum en þeir Breki Gylfason og Hjálmar Stefánsson leikmenn Hauka koma nýjir inn.Meira
Mynd með frétt

Tryggvi ekki valinn

22 jún. 2018Nýliðaval NBA fór fram í nótt í New York í Bandaríkjunum. Tryggvi Hlinason, landsliðsmaður, sem var meðal þeirra leikmanna sem komu til greina til að vera valdir í nýliðavalinu var ekki valinn.Meira
Mynd með frétt

NBA nýliðavalið fer fram í kvöld – nafn Tryggva í pottinum

21 jún. 2018Nýliðaval NBA-deildarinnar fer fram í kvöld og hefst það kl. 23.00 að íslenskum tíma. Nýliðavalið fer fram í Barclays íþróttahöllinni í Brooklyn í New York.Meira
Mynd með frétt

U15 liðin á leið til Danmerkur · Copenhagen-Invitational 2018

14 jún. 2018Í morgun héldu U15 ára liðin af stað í fyrstu keppnisferð yngri liða þetta sumarið en þar munu tvo lið drengja og tvö lið stúlkna sem skipa níu leikmenn hvort keppa yfir helgina. Mótið hefst á morgun og stendur til sunnudags og koma liðin heim um kvöldið. Ísland hefur sent lið til leiks nánast frá upphafi en þetta er 11. árið sem mótið fer fram. U15 landsliðin eru fyrsta landsliðsstig yngri liða og hafa leikmenn öðlast dýrmæta reynslu í gegnum árin með því að hefja landsliðsferil sinn á þessu móti. Meðal leikmanna sem hafa tekið þátt í mótinu má nefna Martin Hermannsson og Thelmu Dís Ágústsdóttur, leikmenn landsliða Íslands í dag.Meira
Mynd með frétt

Breyting á dómaranefnd KKÍ

14 jún. 2018Stjórn KKÍ samþykkti á fundi sínum 12. júní s.l. breytingar á dómaranefnd KKÍ að tillögu formanns KKÍ. Þau Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir og Gunnar Freyr Steinsson ákváðu að segja sig úr dómaranefnd í vor vegna anna í störfum sínum. Í stað þeirra koma þeir Jón Bender og Aðalsteinn Hrafnkelsson inn í nefndina. Ásamt þeim Jóni og Aðalsteini verður Rögnvaldur Hreiðarsson áfram í nefndinni eins og undanfarin ár.Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Undankeppni HM 2019 · Æfingahópur sumarsins

12 jún. 2018Íslenska landsliðið kemur saman í vikunni til æfinga og undirbúnings fyrir komandi tvo leiki í undankeppni HM 2019 sem fram fara í lok júní og byrjun júlí. Þetta eru síðustu leikir liðsins í fyrri umferðinni og eftir þá ræðst hvar liðið stendur og hvert framhaldið verður. Ísland leikur í F-riliði og staðan í honum Tékkland (3/1), Ísland (2/2), Finnland (2/2) og Búlgaría (1/3) fyrir lokaleikina sem framundan eru. Þrjú efstu liðin fara áfram í aðra umferð en þá blandast E og F riðlar saman í einn sex liða riðil. Í E-riðli eru Frakkland, Rússland, Bosnía og Belgía. Fjögur efstu úr þeim nýja riðli fara svo á HM í Kína. Það er því um mjög mikilvæga leiki að ræða fyrir næstu skref íslenska liðsins í keppninni og framhaldinu í að tryggja sér sæti áfram í HM undankeppninni sem og upp á röðun í undankeppni EM 2021. Báðir í sumar leikirnir fara fram á útivelli. Ljóst er að íslenska liðið þarf sigur gegn Búlgaríu til að gulltryggja sér sæti í annarri umferðinni strax en leikurinn gegn Búlgaríu fer fram þann 29. júní og hefst hann kl. 19:00 að staðartíma eða kl. 16:00 að íslenskum tíma. Fari leikar svo að Búlgaría vinni leikinn munu þeir alltaf enda fyrir ofan okkur í riðlinum nema að við leggjum Finna í Hartwall-Arena þann 2. júlí í síðari leiknum, en á þann leik eru allir miðar uppseldir og verða þar 11 þúsund manns staddir að hvetja heimamenn áfram gegn tæplega 100 íslendingum, en leikmenn og fylgdarlið U16 og U18 liðanna verða þar stödd á Norðurlandamóti yngri liða í Finnlandi á sama tíma og mæta á leikinn. Það er því ljóst að leikurinn gegn Búlgaríu er mjög mikilvægur og þar ætla strákarnir að sækja til sigurs. Æfingahópur Íslands er þannig skipaður í sumar:Meira
Mynd með frétt

Landslið Íslands: U20 ára lið karla · Sumar 2018

12 jún. 2018Israel Martin, þjálfari U20 karla, og aðstoðarþjálfari hans, Baldur Þór Ragnarsson, hafa valið sitt 12 manna lið U20 ára karla fyrir sumarið 2018. Íslenska liðið leikur í annað sinn í sögunni í A-deild U20 liða hjá körlunum. Mótið fer fram í umsjón Þýskalands í borginni Chemnitz dagana 14.-22. júlí og mætir þar í riðlakepninni í D-riðli liðum Ítalíu, Svíþjóðar og Serbíu. Eftir riðlakeppnina verður svo leikið um sæti. Liðið hefur verið við æfingar að undanförnu og undirbýr sig að kappi fyrir þetta krefjandi mót. Liðið er skipa eftirtöldum leikmönnum:Meira
Mynd með frétt

Landslið Íslands: U20 ára lið kvenna · Sumar 2018

11 jún. 2018Finnur Jónsson, aðalþjálfari U20 ára liðs kvenna, og aðstoðarþjálfari hans Hörður Unnsteinsson hafa valið lið sitt fyrir sumarið sem tekur þátt í Evrópumóti U20 kvenna. Ísland leikur í B-deild Evrópumótsins og fer mótið í ár fram í Oradea í Rúmeníu dagana 7.-15. júlí. Þar leikur liðið í B-riðli með Hvíta-Rússlandi, Danmörku, Tyrklandi, Búlgaríu og Tékklandi og eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti. Liðið er þannig skipað:Meira
Mynd með frétt

Afreksbúðir drengja og stúlkna · Fyrri helgin 2018 um helgina

1 jún. 2018KKÍ mun standa fyrir Afreksbúðum í ár líkt og síðastliðin sumur. Afreksbúðirnar eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands. Yfirþjálfari ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum. Afreksbúðir í ár eru fyrir ungmenni að þessu sinni sem fædd eru árið 2004 og verða haldnar tvisvar í sumar. Það eru yfirþjálfararnir sem boða leikmenn til æfinga, en um 50-60 leikmenn fá boð úr þessum eina árgangi. Yfirþjálfarar Afreksbúða 2018 eru þeir Lárus Jónsson hjá drengjum og Kristjana Eir Jónsdóttir hjá stúlkum. · Fyrri helgin verður 2.-3. júní í DHL höllinni í Vesturbæ.​Meira
Mynd með frétt

Mikið um að vera í íslenskum körfubolta í sumar

1 jún. 2018Þótt keppnistímabilinu sé lokið í meistaraflokkum og hjá yngri liðunum í ár þá hefur verið mikið um vera á vegum KKÍ síðan úrslit yngri flokka kláruðustu um miðjan maí og er viðamikið landsliðsár framundan í sumar hjá landsliðum KKÍ. Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið KKÍ 3.a með Bob McKillob · 1.-3. júní

29 maí 2018​Næstu helgi fer fram veglegt þriggja daga þjálfaranámskeið sem haldið verður á Ásvöllum í Hafnarfirði. Námskeiðið er haldið af KKÍ og FIBA Europe. Aðalfyrirlesari þess verður Bob McKillop þjálfari karlaliðs Davidson háskólans í Norður-Karolínu en með skólanum leikur einmitt Jón Axel Guðmundsson um þessar mundir. Meðal helstu leikmanna sem Bob hefur þjálfað á sínum 17. árum með skólann má nefna Stephen Curry, leikmann Golden State Warriors í NBA-deildinni sem í nótt trygðu sér sæti í úrslitum NBA-úrslitakeppninnar þar sem þeir mæta Cleveland Cavaliers.Meira
Mynd með frétt

Úrvalsbúðir KKÍ um helgina - Fyrri helgi 2018

25 maí 2018Síðustu sumur hefur KKÍ staðið fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshóp ungmenna. Úrvalshópurinn er undanfari yngri landsliða Ísland þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt vel völdum gestaþjálfurum fara yfir ýmis tækniatriði og stjórna stöðvaæfingum þar sem meðal annars verða æfð skottækni, sendingar, boltameðferð og sóknarhreyfingar. Úrvalsbúðirnar í ár eru fyrir ungmenni fædd 2005, 2006 og 2007. Æfingabúðirnar verða haldnar tvisvar í sumar og er dagskráin sú sama báðar helgarnar. Fyrri helgin verður haldin dagana 26.-27. maí og sú síðari 18.-19. ágúst. Staðsetningar fyrri helgar í maí: · Drengir verða DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði. · Stúlkur verða í Valshöllinni að Hlíðarenda Yfirþjálfarar Úrvalsbúðana eru þau Ingi Þór Steinþórsson hjá drengjum og Ólöf Helga Pálsdóttir hjá stúlkum. Hægt er að sjá tíma á æfingum og nánari upplýsingar á: kki.is/urvalsbudir Meira
Mynd með frétt

Molduxamótið 2018 · Úrslit

22 maí 2018Laugardaginn 12. maí síðastliðin fór fram hið árlega körfuboltamót Molduxa en það hefur unnið sér fastan sess í körfuboltaheimi eldri iðkenda, enda það eina sem haldið er á Íslandi þessi misserin. Leikið var að venju í Síkinu á Sauðárkróki undir öruggri mótsstjórn Molduxa sem að þessu sinni áttu tvö lið í mótinu í sitthvorum aldursflokknum. Leikið var í tveimur riðlum, +30 ára og +45 ára og skráðu sig fimm lið til leiks í hvorn riðil. Leikar fóru þannig að sigurvegarar „unglingadeildar“ var lið FSu frá Selfossi og í flokki eldri leikmanna var það lið Stauka úr Hafnarfirði sem hafði sigur. ​Meira
Mynd með frétt

Þjálfaramenntun KKÍ · KKÍ 1.a dagana 25.-27. maí · Skráning

17 maí 2018KKÍ þjálfari 1.a fer fram dagana 25.-27. maí 2018. KKÍ hvetur félögin til að skrá sína þjálfara til leiks sem ekki hafa setið námskeiðið, sérstaklega unga þjálfar sem og nýja þjálfara sem eru að hefja störf. Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13,5 klukkutímar. Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. KKÍ þjálfari 1.a gildir sem 25% af lokaeinkunn á námskeiðinu. Þjálfarar sem hafa lokið 1.a eru með leyfi til að þjálfa minnibolta 9 ára og yngri.Meira
Mynd með frétt

Stjarnan íslandsmeistari í minnibolta 11 ára drengja 2018!

15 maí 2018Um helgina 4.-6. maí var leikið til úrslita á íslandsmótinu í minnibolta 11 ára drengja í Garðabæ. Það var lið Stjörnunnar sem stóð uppi sem íslandsmeistari 2018 en stjarnan átti tvö lið í úrslitariðlinum á lokamótinu. Með Stjörnuliðunum léku einnig Grindavík, KR, Haukar og Keflavík á mótinu. Þjálfari liðsins er Kjartan Atli Kjartansson og aðstoðarþjálfari er Ingimundur Orri Jóhannsson. KKÍ óskar Stjörnunni til hamingju með titilinn! #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Njarðvík er íslandsmeistari í unglingaflokki karla 2018!

14 maí 2018Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í unglingaflokki karla í Njarðvík á seinni úrslitahelgi yngri flokka 2018. Það var lið Njarðvíkur sem stóð uppi sem íslandsmeistari 2018. Njarðvík lék í undanúrslitunum gegn Grindavík og í hinum undanúrslitaleiknum voru það Breiðablik sem höfðu betur í gegn KR. Í úrslitaleiknum var það svo Njarðvík sem lagði Blika, lokatölur 83:68. Þjálfari liðsins er Rúnar Ingi Erlingsson. Besti leikmaður úrslitaleiksins var valinn í leikslok Kristinn Pálsson sem átti mjög góðan leik, var með 33 stig, tók 17 fráköst og gaf 8 stoðsendingar fyrir sitt lið. Meira
Mynd með frétt

Grindavík er íslandsmeistari í 10. flokki stúlkna 2018!

14 maí 2018Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í 10. flokki stúlkna í Njarðvík á seinni úrslitahelgi yngri flokka 2018. Það var lið Grindavíkur sem stóð uppi sem íslandsmeistari 2018. Grindavík lék í undanúrslitunum gegn Hamar/Hrunamönnum og í hinum undanúrslitaleiknum voru það Keflavíkurstúlkur sem höfðu betur í tvíframlengdum leik gegn Njarðvík. Í úrslitaleiknum var það svo Grindavík sem vann Keflavík 53:36. Þjálfari liðsins er Ólöf Helga Pálsdóttir og aðstoðarþjálfari er Erna Rún Magnúsdóttir. Besti leikmaður úrslitaleiksins var valin Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir en hún skilaði 12 stigum og tók 15 fráköst fyrir Grindavíkurliðið.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira